Ísraelsher hefur lagt til atlögu að hernaðarinnviðum Hezbollah-hreyfingarinnar nærri hafnarborginni Týros í suðurhluta Líbanon.
Skömmu áður hafði herinn skipað íbúum að forða sér brott og halda sig fjarri vegna yfirvofandi árása. Ísraelsher kveðst í yfirlýsingu á samskiptamiðlinum Telegram nauðugur einn kostur að ráðast af hörku á Hezbollah.
Líbanski ríkisfréttamiðillinn NNA greinir frá árásum á Týros auk svæða norðan við borgina þar sem eldar logi í byggingum. Týros er ein af elstu borgum heims og er á heimsminjaskrá UNESCO vegna þess.