Ísraelar skutu smábarn til bana í höndum móður
Barnið var á leið frá Bethlehem með foreldrum sínum þegar Ísraelskir hermenn skutu. Faðirinn var skotinn í gegnum höndina. Hann neitar að trúa því að þetta hafi verið mistök.
Palestínskur faðir sem jarðaði ungbarn sitt, sem ísraelskir hermenn drápu á hernumda Vesturbakkanum, neitaði í dag að trúa því að þetta gæti hafa verið „mistök“.
Sam Fahd Abu Haikal, sjö mánaða gamall, var drepinn nálægt Hebron í gærkvöldi þegar hann var á ferð í bíl með foreldrum sínum, sem einnig urðu fyrir skotum frá ísraelska hernum.
Eftir bráðabirgðarannsókn sagði herinn að einn hermanna hans hefði skotið á „óviðkomandi almenna borgara“ eftir að bifreið þeirra jók hraðann í átt að hermönnunum.
Í kirkjugarðinum í Hebron fylgdu nokkrir tugir manna föðurnum, Fahd Abu Haikal, sem hélt á litlum líkama sonar síns vöfnum í palestínskan fána, að því er teymi fréttastofunnar AFP varð vitni að.
Eiginkona hans, sem særðist í andliti, er enn á sjúkrahúsi en ástand hennar er stöðugt, sagði hann við AFP.
„Við vorum á leið frá Betlehem til Hebron. Skyndilega heyrði ég hávaða, ég stöðvaði bílinn og lyfti höndum,“ sagði hann.
„Ég heyrði skothvelli og sekúndu síðar sá ég kúlu fara í gegnum framrúðuna og síðan í gegnum handlegginn á mér,“ sagði faðirinn, sem er 42 ára gamall.
„Eiginkona mín varð fyrir kúlu sem fór í gegnum vanga hennar hægra megin.“
„Ég get enn ekki skilið hvað gerðist,“ sagði hann.
„Þegar fleiri en einni kúlu er skotið, þegar ekkert viðvörunarskot er gefið og engin viðvörun yfirleitt, getur það ekki verið mistök.“
„Enn eitt fórnarlambið“
Amma barnsins, Feryal Abu Haikal, 65 ára, var einnig í bifreiðinni.
„Ég heyrði skothvelli og hélt að þetta væri viðvörunarskot til að hræða okkur til að snúa við, síðan öskraði tengdadóttir mín og ég sá hana alla í blóði,“ sagði hún við AFP.

„Ungbarn sem var varla byrjað að lifa varð enn eitt fórnarlamb ísraelska hernámsins!“ sagði í færslu frá skrifstofu Mohammeds Mustafa, forsætisráðherra Palestínu, á X.
Ísrael hefur hernumið Vesturbakkann síðan 1967 og ofbeldi hefur aukist verulega á palestínsku landsvæðunum frá því að stríðið á Gaza hófst árið 2023.
Ísraelskir hermenn eða landnemar hafa drepið að minnsta kosti 1.080 Palestínumenn – margir þeirra vígamenn, en einnig fjöldi almennra borgara – á Vesturbakkanum frá 7. október 2023, samkvæmt samantekt AFP sem byggir á tölum frá palestínska heilbrigðisráðuneytinu.
Á sama tímabili hafa að minnsta kosti 44 Ísraelar, þar á meðal hermenn og almennir borgarar, verið drepnir í árásum Palestínumanna eða hernaðaraðgerðum Ísraela, samkvæmt opinberum tölum frá Ísrael.