Íslenskur sjávarútvegur er í brennidepli í nýrri grein danska dagblaðsins Berlingske og er honum lýst af heimildarmönnum þess sem „nútíma fámennisstjórn“. Hann er sagður vera byggður á „fiski, ótta, græðgi og pólitískum áhrifum“.
Blaðamaðurinn Emil Eire Frerk Olsen ræddi við 19 heimildarmenn, meðal þeirra eru stjórnmálamenn, sérfræðingar á ýmsum sviðum og fólk sem starfar í sjávarútvegi. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra er einn þeirra sem ræddu við Olsen.
Í greininni segir að sjávarútvegur hafi lagt sitt af mörkum til ríkissjóðs Íslands en að hann sé einnig að „éta upp lýðræði landsins að innan“, eins og það er orðað í greininni. Sjávarútvegurinn sé byggður á ótta, stjórn og pólitískum áhrifum.
Kvótakerfið hafi farið úr böndunum og leitt til þess að yfirstétt innan sjávarútvegsins hafi óhófleg áhrif á pólitískar ákvarðanir.
Samherjamálið er reifað í greininni, auk umfjöllunar um svokallaða skæruliðadeild, og benda heimildarmenn Berlingske á málið sem grundvallarógn við fjölmiðlafrelsi á Íslandi.
Haft er eftir Daða Má að hann hafi lengi reynt að „leysa vandann“ en að „öflugir þrýstihópar“ standi í vegi. Daði Már nefnir, auk annarra heimildarmanna Berlingske, tengsl Sjálfstæðisflokksins við sjávarútvegsfyrirtæki.