Írönsk yfirvöld tilkynntu í morgun að þau hefðu yfirtekið flutningaskip á Hormússundi.
Esmaeil Makizadeh, varahafnarstjóri í héraðinu Hormozgan, sagði við íranska fjölmiðla að tilefnið væri birting mynda af olíulosun frá skipinu í sjóinn. Búið sé að hreinsa mengunina upp. Írönsk stjórnvöld hafa sett fram kröfu um bætur vegna olíumengunar þar sem olía hafi reglulega lekið úr skipum undanfarnar vikur.
Athugun AFP-fréttastofunnar hefur leitt í ljós að skipið, sem er að flytja sykur, hefur setið fast í Hormússundi vikum saman eftir að hafa skemmst í sprengingu.
Íranar gerðu í nótt drónaárásir á bandarískar herstöðvar í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Jórdaníu. Yfirvöld í furstadæmunum hafa fordæmt árásina og sagt hana hættulega stigmögnun eftir rólega tíma undanfarnar vikur. Loftvarnir komu í veg fyrir tjón af völdum drónanna.
Árásin var gerði í hefndarskyni fyrir árás Bandaríkjanna á eyju í Hormússundi. Sú árás beindist að sögn Bandaríkjamanna að eldflaugaskotpöllum. Þetta er í fyrsta sinn í mánuð sem árásir ganga á víxl milli þeirra í mánuð.
Tilraunir til að koma á samkomulagi um frið milli Írana og Bandaríkjanna hafa ekki borið árangur og engar viðræður standa yfir þessa stundina.