Íranskir fjölmiðlar segja að her landsins hafi skotið tveimur flugskeytum að bandarískri freigátu sem siglt hafi verið um Hormússund. Íransher sagðist fyrr í dag myndu ráðast á öll þau erlendu herskip sem reyndu að sigla um sundið. Sú yfirlýsing var viðbragð við orðum Bandaríkjaforseta um að flutningaskip fengju hervernd á leið í gegnum sundið.
Íranska Fars-fréttastofan sagði að flugskeytunum hefði verið skotið að bandarísku freigátunni eftir að skipverjar svöruðu í engu viðvörunum íranska flotans. Að sögn íranska fjölmiðilsins var bandaríska herskipið á ferð nærri írönsku hafnarborginni Jask.
Yfirstjórn Bandaríkjahers svaraði yfirlýsingum Írana og sögðu að ekkert skipa sinna hefði orðið fyrir flugskeyti. Bandarískur embættismaður sem Al Jazeera ræddi við sagði að frásagnir Írana af áras væru tilbúningur einn.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að bandarísk herskip myndu fylgja flutningaskipum í gegnum Hormússund. Ríflega 900 skip eru á Persaflóa og komast ekki gegnum sundið án þess að eiga á hættu að verða fyrir árásum. Íranar hafa ráðist á skip og komið fyrir tundurduflum. Bandaríkjamenn hafa sett hafnbann á Íran.
Herstjórn Írans lýsti því yfir í morgun að ráðist yrði á öll erlend herskip sem sigldu um Hormússund eða reyndu að komast þangað.
Utanríkisráðuneyti Sameinuðu arabísku furstadæmanna sagði í dag að Íranar hefðu sent tvo dróna til árásar á olíuflutningaskip á Hormússundi. Að sögn ráðuneytisins særðist enginn í árásinni.
Fréttin hefur verið uppfærð með viðbrögðum Bandaríkjanna og yfirlýsingu SAF.