Í lok maí tilkynnti Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra, að hún væri farin í tímabundið veikindaleyfi. Nokkrum dögum áður hafði ráðherrann tekið þátt í nokkuð stormasamri umræðu á Facebook vegna málefna sem heyra undir hennar ráðuneyti.
Frétt um úrræði ungmenna í vanda kveikti umræðu
Tilefni orðaskiptanna var frétt um bið eftir plássi á meðferðarheimilum fyrir ungmenni í vanda. Málaflokkurinn heyrir undir barnamálaráðherra og hefur verið töluvert til umræðu á síðustu misserum.
Ungmenni sem glíma við hegðunarvanda, neyslu vímuefna eða hafa leiðst út í afbrot og ofbeldi geta átt kost á vistun á meðferðarheimili. Barna- og fjölskyldustofa fer með málaflokkinn sem heyrir undir ráðuneyti Ingu Sælandar.
Vistun á meðferðarheimili er íþyngjandi úrræði og því er í hverju tilviki metið hvort það sé viðeigandi og líklegt til að skila árangri. Matið er unnið í samráði við fjölskyldu ungmennis, sé hún í stakk búin til að taka þátt í málsmeðferðinni. Vandi unglinga stafar oft af fjölskylduaðstæðum og því er litið til þeirra við ákvörðun um úrræði.
Í maí var opnað nýtt meðferðarúrræði í Gunnarsholti og við það tækifæri var greint frá því að ekki væri lengur bið eftir plássi fyrir ungmenni í vanda. Sú fullyrðing vakti gagnrýni hjá ýmsum og í kjölfarið hófust líflegar umræður á samfélagsmiðlum.
„Neikvæðnisraddir“ og „lygari“
Inga tók sjálf virkan þátt í umræðunni og svaraði gagnrýnendum með nokkuð beinum hætti.
Meðal þess sem hún skrifaði var:
„Það er fjandans sama hvað maður gerir öskrandi neikvæðnin hljómar allt í kring. Það væri óneitanlega tilbreyting ef jákvæðnin fengi aðeins að brosa í gegnum sortann.“
Í annarri færslu skrifaði hún:
„Þetta er sannleikurinn! Þrátt fyrir neikvæðnis-niðurrifsraddirnar sem öskra sig hása hér. Virkilega dapurt þegar verið er að snúa ófremdarástandinu sem var viðvarandi til betri vegar að til séu þeir sem ekki einungis kynna sér málin ekkert heldur hafa list á því að tjá sig um eigin vanþekkingu.“
Þá svaraði hún einum gagnrýnanda með orðunum:
„Viltu gjöra svo vel að rökstyðja þessa fullyrðingu þína að ég sé lygari.“
Fór í tímabundið veikindaleyfi
Nokkrum dögum eftir þessi orðaskipti var tilkynnt á vef Stjórnarráðsins að Inga Sæland hefði tekið sér tímabundið veikindaleyfi.
Í tilkynningunni komu ekki fram nánari upplýsingar um ástæður leyfisins né hversu lengi það myndi standa yfir.
Sjálf sagði Inga Sæland á Facebook að hún hygðist snúa aftur innan tíðar, tvíefld og eldspræk.