Íslensk stjórnvöld vilja að 65% íslenskra barna verði komin með grunnhæfni í lesskilningi við lok grunnskóla árið 2030, og að 68% verði komin með grunnhæfni í stærðfræði.
Þetta kemur fram í drögum Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, að þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu stjórnvalda, þar sem útlistuð eru fjögur lykilmarkið til ársins 2030.
Athygli vekur að þetta er í fyrsta sinn sem stjórnvöld setja fram slík lykilmarkmið í aðgerðaáætlunum menntastefnunnar.
Hin tvö lykilmarkmiðin eru að 60% fimmtán ára drengja öðlist grunnhæfni í lesskilningi fyrir sama tíma, og að 80% nemenda sem ekki ná grunnhæfni samkvæmt Matsferli fái viðeigandi stuðning í námi innan átta vikna.
Aðgerðaáætlunin á að ná yfir árin 2027 til 2030, og hafa drögin að henni nú verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Þar segir að um sé að ræða sóknaráætlun.
Helmingur drengja býr ekki yfir grunnhæfni
Niðurstöður PISA 2025 voru kynntar í síðasta mánuði. Aldrei hefur árangur íslenskra nemenda mælst jafn slakur.
Samkvæmt PISA búa aðeins 56% íslenskra barna yfir grunnhæfni í lesskilningi við lok grunnskóla. Þónokkur munur mælist á milli kynja en 62% stúlkna búa yfir grunnhæfni samanborið við 50% drengja.
Þá búa aðeins 62% íslenskra barna yfir grunnhæfni í stærðfræði við lok grunnskóla. Munurinn á milli kynja mælist ekki jafn mikill í greininni en niðurstöður sýna að 64% drengja búa yfir grunnhæfn samanborið við 61% stúlkna.
Næsta PISA-próf verður lagt fyrir nemendur árið 2029.
Tímarammi og mælikvarðar
Aðgerðaáætlunin sem nú liggur fyrir í samráðsgátt er sú þriðja og síðasta sem stjórnvöld leggja fram í mennstastefnunni sem nú er í gildi. Hún hefur að geyma um þrjátíu aðgerðir sem miða að því að hvert barn nái betri árangri í námi og búi við meiri farsæld, að því er fram kemur í samráðsgáttinni.
Áformað er að Inga leggi áætlunina fram á þingi sem þingsályktunartillaga.
Áhersluatriðin eru sex og þau eru eftirfarandi:
- Kennarar í fremstu röð – aukin gæði kennslu.
- Stórsókn í útgáfu námsgagna – fjölbreytt og vönduð námsgögn.
- Stuðningur strax – öruggt og inngildandi skólasamfélag.
- Alla leið – ekkert ungmenni týnist á leiðinni úr grunnskóla í framhaldsskóla og út í lífið.
- Skref fram á veginn – raunvísindi, tækni, verkfræði og stærðfræði (STEM), gervigreind og hæfni fyrir samfélag framtíðar.
- Menntastefna til framtíðar.
Áætlunin er frábrugðin fyrri aðgerðaáætlunum að því leyti að nú eru tiltekin tímarammi og mælikvarðar fyrir hverja og eina aðgerð.
Í skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar, sem var fengin til að rýna menntastefnu Íslands á sínum tíma, kom fram að mikilvægt væri að innleiða mælikvarða til að hægt væri að meta árangur aðgerða stjórnvalda í málaflokknum.