Upphafskona Álfahátíðar í Hellisgerði sakar Hafnarfjarðarbæ um hugverkastuld og íhugar að leita réttar síns. Hún segir bæjarfélagið hafa tekið yfir nafnið og hátíðina sem hún hafi komið á laggirnar.
Metnaðarleysi af hálfu bæjarfélagsins
„Mér finnst þetta bara mjög súrrealískt að svona bæjarfélag skuli ekki vera með meiri metnað en það að geta ekki bara annaðhvort verið í samstarfi eða keypt þetta bara, eða búið til sitt eigið konsept. Í staðinn fyrir að stela frá öðrum hugmyndum,“ segir Tinna Bessadóttir, hönnuður og viðburðastjóri.
Álfahátíð í Hellisgerði hefur verið haldin árlega í Hafnarfirði frá árinu 2017. Tinna segist hafa gengið með hugmyndina í kollinum í langan tíma, en verkefnið hafi fyrst farið á flug þegar hún sótti nám í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum.
Tinna og fjölskylda hennar eyddu mikilli vinnu í að byggja upp hátíðina í gegnum árin, en Tinna ákvað að hætta með hana árið 2023. Hún segist hafa tilkynnt Hafnarfjarðarbæ að hátíðin hyrfi á brott með henni.
Árið eftir var engin hátíð, en Hafnarfjarðarbær ákvað að endurvekja hana í fyrra, án að komu Tinnu.
„Ég sé í fyrra auglýsingu á Internetinu þar sem er bara mynd af stjúpdóttur minni og fyrrverandi tengdasyni, sem ég hafði notað í auglýsingu á minni eigin síðu. Sem er náttúrulega mjög ósmekklegt.“
„Þetta er allt alveg eins. Bara copy paste“
Tinna sendi fyrirspurn á bæjaryfirvöld þar sem hún spurði hvort hún þyrfti að íhuga að sækja um einkaleyfi á hátíðinni. Hún segir að fyrirspurninni hafi verið mætt með fálæti. Í mars komst hún fyrir tilviljun að því að Hafnarfjarðarbær hefði sótt um einkaleyfi á nafninu.
„Þetta snýst ekkert bara um það endilega nafnið heldur um uppbygginguna á öllu konseptinu. Að þau taka bæði nafnið og uppbygginguna. Þau eru með sömu uppröðun á skemmtiatriðum, sömu skemmtikrafta, þetta er allt alveg eins. Bara copy paste.“
Tinna vakti máls á þessu í færslu á Facebook.
„Síminn hefur ekki stoppað í allan dag. Ég hef ekki náð að svara öllum skilaboðum sem ég hef fengið. Einhverjir lögfræðingar hafa verið að hafa samband,“ segir Tinna.
Hún íhugi nú að leita réttar síns.
Hafnarfjarðarbær sendi fréttastofu tilkynningu vegna færslu Tinnu. Þar segir að álfar og huldufólk séu órjúfanlegur hluti af menningararfi Hafnarfjarðar – og að álfahátíð hafi verið haldin af öðrum aðila með styrk frá bænum árið 2014. Ágreining um hátíðina þurfi að ræða á réttum vettvangi.
„Eins og staðan er akkúrat núna er þetta eitthvað sem þau verða að kaupa af mér. Þetta er náttúrulega bara hreinn hugverkastuldur, já alveg.“