Eldur kviknaði í íbúðarhúsnæði við Skúlagötu í Stykkishólmi í dag. Þetta staðfestir Þorbergur Bæringsson, fyrrverandi slökkviliðsstjóri hjá slökkviliði Stykkishólms og nágrennis. Vísir greindi fyrst frá.
Einar Strand, núverandi slökkviliðsstjóri, segir að búið sé að slökkva nær allan eldinn en að húsið sé ónýtt. Slökkviliðið vinni nú að því að rífa húsið. Þykkan svartan reyk lagði frá húsinu og yfir bæinn um tíma.
Annað hús varð alelda á sama reit
Bogi Thorarensen Bragason, sjónarvottur og nágranni í næsta húsi, segir einn íbúa hafa verið í húsinu en hann hafi náð að koma sér út. Þegar sé búið að rífa stóran hluta hússins.
Hann og aðrir nágrannar hafi hlaupið að húsinu með slökkvitæki í fyrstu og reynt að berjast við eldinn en gefist upp vegna mikils hita og reyks.
Hann segir annað hús á sama reit hafa orðið alelda fyrir einhverjum árum.