Vatnsskortur er víða í Skagafirði. Staðan er sérstaklega slæm í kringum Varmahlíð. Skagafjarðarveitur báðu eigendur heitra potta að nota þá ekki um helgina og líklegt þykir að þau tilmæli vari fram á haustið.
„Málið er að það [vatnsstaða] er minnkandi. Grunnvatnsstaðan er orðin svolítið lág. Við erum að taka þetta úr lindum og við byggjum upp okkar vatnsbúskap á vetrarúrkomunni. Og það hefur ekkert snjóað undanfarin ár, sem heitið getur. Rigning skilar voðalega takmörkuðu, það þarf þá að hellirigna í einhverja daga til þess að það skili sér til okkar,“ segir Gunnar Björn Rögnvaldsson, verkefnastjóri hjá Skagafjarðarveitum.
Tvær nýjar rannsóknarholur
Vandamálið er ekki nýtt af nálinni þó að staðan sé óvenju slæm þessa dagana í firðinum. Gunnar hefur heyrt af lækjum sem hafa þornað upp sem hafa aldrei verið þurrir áður. Hann telur líklegt að Íslendingar þurfi að skoða neysluvenjur sínar ef ekki á illa að fara.
„Grunnvatnsstaðan hefur bara minnkað því vetrarúrkoman hefur látið á sér standa. Þetta er ekki óþrjótandi auðlind en það er alltaf verið að tala um að það sé nóg til af vatni. Það er auðvitað til nóg en það kostar mikið að sækja það,“ segir Gunnar.
Á næstu vikum verða tvær nýjar rannsóknarholur teknar. Það er það eina í stöðunni að mati Gunnars því langt er í fyrstu snjókomu vetrarins. Hann er bjartsýnn á að þær eigi eftir að skila góðum niðurstöðum fyrir Skagfirðinga:
Ég er vongóður um það. Ég get ekki verið annað en bjartsýnn.