Héðinsfjarðargöng voru tekin í notkun 2010. Fljótlega kom í ljós vatnsleki Ólafsfjarðarmegin. Lekinn hefur valdið íbúum Fjallabyggðar töluverðum óþægindum. Vegstikur í göngunum eru þaktar drullu og bílar verða mjög skítugir þegar ekið er í gegn.
„Það má segja það að þeir sem eru á ferðinni milli bæja, eiga ferð daglega til vinnu og ekki síst svona eins og skólarútan eða aðrir stórir bílar sem fara reglulega í gegn – þeir gera ekkert annað en að þvo bílana eftir ferð í gegnum göngin. Auðvitað á þetta ekkert að vera svona,“ segir Helgi Jóhannsson, formaður bæjarráðs Fjallabyggðar.
Ríflega fjögur hundruð undirskriftir
Helgi tók á móti undirskriftarlista frá Hjördísi Hjörleifsdóttur, íbúa í Fjallabyggð, þar sem íbúar skora á Vegagerðina að gera eitthvað í lekanum. Bæjarstjóra Fjallabyggðar var falið að koma á fundi með Vegagerðinni vegna málsins. Bæjarráð Fjallabyggðar vakti fyrst athygli á lekanum 2021.
Helgi segist hafa heyrt ýmsar útgáfur af því hvað sé til ráða en ljóst er að aðgerðirnar sem þurfi að fara í séu nokkuð veigamiklar.
„Maður hefur heyrt svona ýmsar útgáfur af því hvað er hægt að gera en mér skilst að það þurfi að skipta um undirlag á tveggja til þriggja kílómetra kafla þannig að þetta er stór aðgerð.“
Vegagerðin boðar viðgerðir í haust
Vegagerðin segir í skriflegu svari til fréttastofu að brugðist hafi verið við leka í göngunum með drenandi aðgerðum reglulega frá því að göngin voru opnuð. Ítarleg úttekt var síðan framkvæmd 2025 vegna aukinna vandkvæða af völdum lekans.
Farið verður í viðgerðir í haust og árangur þeirra metinn næsta ár og hvort þurfi að fara í frekari aðgerðir. Þá verði áframhaldandi góð samskipti við bæjaryfirvöld í Fjallabyggð af hálfu Vegagerðarinnar.