Íbúum í Vík í Mýrdal fjölgar stöðugt en á sama tíma fjölgar þeim á staðnum sem eru af erlendum uppruna, en nú eru þeir orðnir um 60% af íbúum í sveitarfélaginu. Fólk af um 30 þjóðernum býr í Vík.
Í Mýrdalshreppi búa á tólfta hundrað íbúar en í þorpinu sjálfu búa um þúsund manns. Atvinnulífið gengur meira og minna allt út á þjónustu við ferðamenn og það virðist ekkert lát vera á ferðamannastraumnum í Vík og næsta nágrenni.
„Íbúafjöldinn hefur náttúrulega rúmlega tvöfaldast á 10 árum og það er mikið byggt af íbúðarhúsnæði. Auðvitað er þetta drifið áfram af miklum vexti í ferðaþjónustu og við erum að fá mikið af erlendum íbúum, sem margir eru farnir að setjast að hjá okkur, eignast börn, sem ganga hér í skóla. Við viljum bara hlúa vel að þessum íbúum eins og öllum öðrum,” segir Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps.
Einar segir að nú búi íbúar af um 30 þjóðernum í Mýrdalshreppi og að mikið sé lagt í að þeir læri íslensku.
„Þetta er bara alls konar fólk, sem er að koma með alls konar þekkingu inn í samfélagið. Þannig að já, eins og ég segi, við viljum bara búa þannig um hnútana að við getum tryggt bæði fullorðnu fólki, sem kemur og sest hérna að, góða íslenskukennslu og hlúð vel að börnunum þeirra,” segir Einar Freyr.
En hvað með ferðaþjónustuna, hvernig líst sveitarstjóranum á stöðuna þar?
„Það eru svona kannski aðeins óljósari horfur í ferðaþjónustu. Kannski stefnir ekki í jafn mikinn vöxt en ferðaþjónustan, eins og allt annað í heiminum, fylgir nú lögmálum þyngdaraflsins og allt, sem fer upp það hægir á sér og fer svo einhvern tímann niður. Ég er ekki með neitt svartsýnisraus, þetta er einstök náttúra hérna í kring,” segir Einar Freyr.