Samband stjarnanna hefur verið áberandi undanfarið en þau sáust meðal annars kyssast á Ofurskálinni í febrúar og hafa síðan þá verið óhrædd að birta myndir af hvort öðru á samfélagsmiðlum.
Kardashian var nýkomin frá London þar sem hún fagnaði opnun á nýrri Skims verslun. Hún flaug beint yfir hafið til að styðja við bakið á kærasta sínum, Formúlu 1 ökuþórnum, sem var einn af skipuleggjendum og heiðursgestum kvöldsins á opnunarhátíð safnsins Lucas Museum Of Narrative Art’s.
Kim klæddist glitrandi svörtum, útsaumuðum kjól frá tískuhúsinu Saint Laurent úr smiðju Tom Ford frá haustlínunni 2004 ásamt eyrnalokkum frá Oscar Heyman og hring frá Zydo. Glitrandi, þröngt og ofurfínt í anda tískugyðjunnar.
Lewis Hamilton klæddist líka fötum frá Saint Laurent til að vera í stíl við Kim. Hann valdi smart jakkaföt frá tískuhúsinu með tvíhnepptum jakka með breiðum, silkimjúkum og oddhvössum kraga og engu innanundir. Hann paraði glæsilega skartgripi, með demantshálsmen og demantseyrnalokka við lúkkið.