Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um konu í annarlegu ástandi í bifreið. Er lögreglumenn gáfu sig á tal við konuna kom í ljós að hún reyndist vera á stolinni bifreið. Var konan því handtekin og færð í fangaklefa en látin laus að skýrslutöku lokinni.
Þetta er á meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Á meðal fleiri verkefna var handtaka manns sem grunaður er um þjófnað úr verslun en við leit á honum fundust bæði fíkniefni og nokkuð magn af ætluðu þýfi.
Tilkynningar bárust einnig um ölvaðan mann sem neitaði að yfirgefa anddyri hótels og mann sem hafði læst sig inni á salerni verslunar og neitaði að fara út. Í báðum tilvikum var viðkomandi gert að yfirgefa staðinn.
Þá handtók lögreglan þrjá ökumenn grunaða um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Einn þeirra var jafnframt kærður fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Einnig voru nokkrir aðrir ökumenn kærðir fyrir umferðarlagabrot, meðal annars fyrir að aka gegn rauðu ljósi, án ökuréttinda og á nagladekkjum utan leyfilegs tímabils.
Tilkynningar bárust einnig um nokkur umferðaróhöpp, þar á meðal árekstur við vegrið og slys á rafhlaupahjóli. Engin alvarleg meiðsl urðu á fólki í þeim málum.
Að auki hafði lögregla afskipti af manni sem reykti kannabis á bifreiðastæði og reyndist vera með fíkniefni á sér.