Jóhann B. Skúlason, deildarstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, segir aukinn umferðarþunga vera helsta áhyggjuefnið þegar fólk streymir vestur til að fylgjast með almyrkvanum. Hann hvetur ferðafólk til að undirbúa sig vel og leggja tímanlega af stað.
Spár gera ráð fyrir skýjuðu veðri alls staðar á landinu á miðvikudag en minnst skýjað verður yfir Breiðafirði.
Mikið álag verður á fjarskiptakerfum þar sem fjölmennast verður í kringum almyrkvann en á Vestfjörðum og Vesturlandi er búið að efla fjarskiptasambandið. „Ein af þeim ráðstöfunum sem búið er að gera er að neyðarsímtöl njóta forgangs,“ segir Jóhann.
Jóhann segir aukinn viðbúnað verða á miðvikudag fram eftir kvöldi og hvetur fólk til að leggja seinna af stað heim svo umferðin dreifist.