Nokkuð blæs í dag, sérstaklega við suðausturströndina og á sunnanverðu Snæfellsnesi þar sem má búast við allt að átján metrum á sekúndu. Mildasta veðrið verður suðvestanlands.
Veðurfræðingur á vakt á Veðurstofunni varar við hvössum norðaustan vindstrengjum við suðausturströndina og á sunnanverðu Snæfellsnesi með snörpum vindhviðum fram eftir degi. Það getur verið varasamt ökutækjum sem eru viðkvæm fyrir vindi.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Norðaustan átta til fimmtán metrar á sekúndu, en þrettán til átján við suðausturströndina og á sunnanverðu Snæfellsnesi. Rigning á norðaustan- og austanverðu landinu, en annars skýjað með köflum og þurrt að kalla.
Norðaustan fimm til þrettán, en tíu til fimmtán norðvestantil. Rigning norðan- og austanlands, skúrir á Suðurlandi, en þurrt að kalla vestantil.
Hiti 6 til 15 stig, mildast suðvestanlands.
Ef við lítum til næstu daga þá er útlit fyrir norðaustanátt á föstudag, rigningu norðan- og austantil en þurrt að kalla á suðvestanverðu landinu. Hiti 6 til 15 stig, mildast suðvestantil. Norðlæg eða breytileg átt um helgina og í byrjun næstu viku með dálítilli rigningu eða skúrum í öllum landshlutum.