Við rekjum atburði gærdagsins sem vöktu mikla athygli en manninum var náð niður úr tunnunni á Hval 9 í Hvalfirði í gærkvöldi eftir fortölur frá lögreglumanni sem fór í körfubíl upp í mastrið til hans.
Þá tökum við stöðuna á lokadegi þingsins áður en þingmenn fara í sumarfrí þar sem mörg mál eru á dagskrá.
Að auki fjöllum við um kvenréttindadaginn sem haldinn er hátíðlegur í dag og skundum á Þingvöll þar sem við fylgjumst með undirbúningi fyrir stórtónleika helgarinnar.
Í sportpakkanum fylgjumst við með kylfingnum Gunnlaugi Árna sem tekur þátt á US Open en því miður hefur hvorki gengið né rekið hjá honum á mótinu.