Uppreisnarsveitir Húta í Jemen segjast hafa skotið niður F15 orrustuþotu sádiarabíska flughersins í morgun með heimagerðri eldflaug.
Í yfirlýsingu talsmanns Húta á samfélagsmiðlum var þotunni grandað yfir Marib-héraði þar sem hún var við hernaðaraðgerðir. Hútar saka Sáda um að hafa gert hundruð árása á Jemen í nótt eftir að fjölþjóðaherinn undir þeirra stjórn skaut niður dróna sem sagður var á leið til Mekka, helgustu borgar múslíma, í nótt. Hútar sögðust ekki bera ábyrgð á för drónans.