Verslunarhúsnæðið að Ásvallagötu 19 var í dag skráð til sölu á fasteignavef Vísis en þar hefur matvöruverslunin Kjötborg verið til húsa í áratugi.
Húsnæðið er verðsett 55 milljónir króna en um 88 fermetra húsnæði er að ræða auk óskráðs kjallara, sem er um 40 fermetrar. Það er Höfði fasteignasala sem sér um söluna.
Steinhúsið var byggt 1928. Verslunin var stofnuð árið 1958 í smáíbúðahverfinu en færði sig svo að Ásvallagötuna árið 1981.
Í dag er hún rekin af bræðrunum Gunnari og Kristjáni Jónassonum en eru þeir löngu orðnir eins konar goðsagnir í Vesturbænum.
Heimildarmynd var gerð um þá bræður árið 2000 og svo aftur árið 2008 þar sem sviðsljósinu er beint að stríði þeirra gegn ráðandi markaðsöflum og bryttum neysluvenjum þjóðarinnar.
Bræðurnir voru valdir Reykvíkinga ársins 2014 en þeir hafa verið kallaðir síðustu móhíkanar í stétt smákaupmanna.