Lögreglan á Norður Írlandi hefur handtekið mann á þrítugsaldri, sem talinn er vera af sómölskum uppruna, grunaðan um tilraun til manndráps eftir hrottalega hnífaárás í norðurhluta Belfast á mánudagskvöld.
Árásin átti sér stað um klukkan 22:30 á mánudagskvöld. Fórnarlambið, karlmaður á fertugsaldri, hlaut alvarlega áverka á andliti, hálsi og baki og liggur nú á sjúkrahúsi. Líðan hans er sögð alvarleg.
Íbúar gripu inn í
Myndskeið sem dreift hefur verið á samfélagsmiðlum sýna íbúa hverfisins reyna að stöðva árásarmanninn áður en lögregla kom á vettvang. Á myndböndunum má meðal annars sjá mann vopnaðan kylfu takast á við hinn grunaða.
Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Norður-Írlandi (PSNI), sagði að um grimmilega árás hefði verið að ræða og að sérstakt neyðarástand hefði verið lýst yfir vegna málsins.
Hann hrósaði jafnframt þeim íbúum sem gripu inn í og reyndu að koma í veg fyrir frekari árásir.
„Þeir sýndu mikið hugrekki og samfélagslega ábyrgð,“ sagði hann.
Forsætisráðherra fordæmir árásina
Forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, sagði árásina viðbjóðslega og sagðist ekkert umburðarlyndi hafa gagnvart slíku ofbeldi á götum landsins.
„Hugur minn er fyrst og fremst hjá fórnarlambinu. Ég vil einnig þakka fyrstu viðbragðsaðilum og þeim almennu borgurum sem gripu inn í,“ sagði Starmer.
Rupert Lowe, formaður Restore Britain, sagði að slíka menn ætti að dæma til dauða.
Við vörum við myndskeiðinu hér fyrir neðan.
🚨WATCH: GRAPHIC FOOTAGE shows An African migrant attempting to BEHEAD somebody in North Belfast 🇮🇪
The attack was carried out with a Stanley blade and happened at around 10:30pm last night (Monday 8th June) on Kinnaird Avenue.
Every single one must leave, ALL OF THEM 🚫…
— BRITAIN IS BROKEN 🇬🇧 (@BROKENBRITAIN0) June 9, 2026