Þrír erlendir karlmenn á þrítugsaldri hafa verið ákærðir fyrir manndrápstilraun í bílakjallara á Höfðatorgi í mars síðastliðnum.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudaginn en mbl.is hefur ákæruna undir höndum.
Greindi Morgunblaðið frá því í kjölfar árásarinnar að hluti þeirra sem hefðu verið handteknir í kjölfar árásarinnar hefði tengsl við vígasamtökin Hamas. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu neitaði því að rannsóknin benti til þess en það stangaðist þó á við heimildarmenn blaðsins innan lögreglunnar.
Ekið á manninn og hann stunginn og barinn
Einn ákærðu, Kareem M. M. Abufarhah, er í ákærunni sakaður um að hafa ekið Land Rover-bifreið á miklum hraða á brotaþola þannig að hann hafnaði á vélarhlíf bifreiðarinnar og féll í jörðina.
Er brotaþoli lá í jörðinni eftir að ekið var á hann er Quassay Ali Yahya Alsadi ákærður fyrir að berja hann ítrekað í líkamann með óþekktu áhaldi.
Þriðji maðurinn sem ákærður er í málinu, Mohamed Sayidali Ahmed, er svo ákærður fyrir að stinga manninn í vinstri rasskinn með óþekktu stunguvopni í kjölfarið á barsmíðum Quassay.
Fimm ára lágmarksrefsing
Samkvæmt ákærunni var maðurinn í lífshættu í kjölfar árásarinnar en hann hlaut sár í húðbeði vinstri rasskinnar, lungnamar á báðum lungum, blóðþurrðarlost, brot á vinstri upphandlegg, mar, bólgur og fleiðusár á vinstri ökkla og þreifeymsli á vinstri handlegg og kvið.
Mennirnir eru allir ákærðir fyrir tilraun til manndráps og er þess krafist að þeir verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Lágmarksrefsing fyrir manndrápstilraun er fimm ára fangelsi en hámarksrefsing er ævilangt fangelsi.
Maðurinn sem varð fyrir árásinni er 26 ára gamall og krefst hann þess að mennirnir greiði honum tíu milljónir króna í miskabætur sem og skaðabætur upp á tæpar hundrað þúsund krónur.