Líkur eru á hreti á norðanverðu landinu frá og með fimmtudegi.
Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur við mbl.is.
„Það er undirliggjandi í reiknuðum spám. Ef líklegasta spáin gengur eftir þá snýst til norðaustanáttar á fimmtudag og þá kólnar sérstaklega um norðanvert landið,“ segir hann.
Mikill hitastigull sé suður eftir landinu sem nái hámarki á morgun. Þá sé stutt í kalt loft norður undan og frekar stutt í mjög hlýtt loft suðaustur undan, sem hefur verið yfir Bretlandseyjum, en fregnir hafa verið af hitametum þaðan.
Meiri líkur en minni á snjó í fjöllum
Einar segir meiri líkur en minni á að það kólni það mikið að gera megi ráð fyrir því að það snjói í fjöll á Norðaustur- og Austurlandi, á fimmtudag en einkum á föstudag og laugardag, ofan 100 til 200 metra.
Spurður hvort þetta þyki óvenjulegt á þessum árstíma svarar Einar neitandi. Hitt beri þó að líta á að svipað veður hefur verið um þetta leyti síðustu tvö ár og því megi spyrja sig hvort eitthvað sé orðið venjulegt ef það gerist í þriðja skipti.
Tekur hann dæmi um sumarhretið 1.-3. júní fyrir tveimur árum sem hann segir hafa verið mjög óvenjulegt.