Tónlistarhátíðin fór fram í Austurbæjarbíói föstudaginn 14. ágúst og var yfirskrift hennar að hún væri fögnuður að loknum sólmyrkva.
„EFTIR er samkoma vina og listamanna frá Íslandi og víðs vegar að úr heiminum sem stendur yfir eitt kvöld. Að hluta til tónleikar, að hluta til samstarfsverkefni, en fyrst og fremst er þetta hátíð tengslanna sem verða eftir þegar sjaldgæfar stundir líða hjá,“ stóð í lýsingu hátíðarinnar.
Hozier, sem heitir fullu nafni Andrew John Hozier-Byrne, er írskur söngvari og tónlistarmaður. Hann er frægastur fyrir smáskífu sína „Take Me to Church“ frá árinu 2013 sem var tilnefnd til Grammy-verðlauna.
Um víðan völl í sjö tíma
Tónlistarmógúllinn Atli Örvarsson, sem stofnaði Inni music ásamt O´Herlihy, var einn þeirra sem stigu á stokk þá sjö klukkutíma sem dagskráin spannaði.
Í viðburðarlýsingunni sagði enn fremur að „flakkað yrði á milli laga, umhverfishljóða, plötusnúða, tilrauna og óvæntra samstarfsverkefna. Sumir listamenn væru að hittast í fyrsta sinn og aðrir hefðu samið tónlist saman í mörg ár. Rauði þráðurinn væri vinátta, forvitni og sameiginleg ástríða fyrir því að skapa eitthvað saman.“
Þá var það ítrekað að Ísland hefði alltaf verið staður þar sem leiðir fólks liggja saman, EFTIR snúist um orkuna sem sitji eftir þegar eitthvað sérstakt [í þessu tilfelli almyrkvinn] hafi átt sér stað.
Hér fyrir neðan má renna yfir lista þeirra sem fram komu á hátíðinni:
CHROME SPARKS
EYDÍS EVENSEN
JFDR
TJARA (Kjartan Holm · Sin Fang · Francesco Fabris)
SCAM
JAMIE DUFFY
ATLI ÖRVARSSON
ÚLFUR
BRAD OBERHOFER
MIYA FOLICK
DJ OLIVE KIMOTO
SANDRAYATI
LULANNIE
MEREDI
GHOSTGLITTER
+ Sérstakir gestir
CHROME SPARKS
EYDÍS EVENSEN
JFDR
TJARA (Kjartan Holm · Sin Fang · Francesco Fabris)
SCAM
JAMIE DUFFY
ATLI ÖRVARSSON
ÚLFUR
BRAD OBERHOFER
MIYA FOLICK
DJ OLIVE KIMOTO
SANDRAYATI
LULANNIE
MEREDI
GHOSTGLITTER
+ Sérstakir gestir