Frá þessu greinir í yfirlýsingu rússneska utanríkisráðuneytisins en Rússar gerðu á dögunum eina umfangsmestu árásina á Kænugarð frá upphafi stríðsins. Stjórnvöld í Úkraínu segja um að ræða „skammarlausa kúgun“ og hvetja bandamenn til að gefa enn í refsiaðgerðir sínar gegn Rússum.
Í yfirlýsingu stjórnvalda í Úkraínu segir meðal annars að með því að hvetja sendifulltrúa til að forða sér séu Rússar í raun og veru að viðurkenna að þáttur í aðgerðum þeirra sé að ógna fulltrúum erlendra ríkja í landinu. Þá sé sannleikurinn sá að Kænugarður hafi sætt stöðugum árásum og ógnin af völdum Rússa verið svo til óbreytt síðustu misseri.
Að minnsta kosti fjórir létust og fjöldi særðist í árásum Rússa á Kænugarð aðfaranótt sunnudags, þar sem Rússar skutu tugum eldflauga og hundruðum dróna að höfuðborginni og ofurfrárri Oreshnik eldflaug að Bila Tserkva, sem er í um 90 km fjarlægð frá borginni.
Meðal skotmarka voru Listasafn Úkraínu, Chernobyl-safnið og verslanamiðstöð.