Bandaríski leikarinn James Handy, sem margir þekkja úr kvikmyndunum Jumanji og Top Gun: Maverick, lést á miðvikudag eftir að hafa verið stunginn til bana fyrir utan heimili sitt í Tarzana hverfi í Los Angeles.
Handy var 81 árs gamall. Lögregla kom að honum eftir að neyðarsímtal barst um morguninn. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn.
Michael Gledhill, 44 ára sonur kærustu Handy, hefur verið handtekinn, grunaður um morðið. Samkvæmt lögreglu bjó hann á heimilinu ásamt Handy og móður sinni.
Sagðist hafa drepið „mann syndarinnar“
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var það Gledhill sjálfur sem hringdi í neyðarlínuna um klukkan 9:30 um morguninn. Hann á að hafa sagt við lögreglumenn:
„Ég er sonur mannsins, ég drap mann syndarinnar.“
Öryggismyndavélar í nágrenninu náðu einnig myndefni af manni sem gekk rólega frá húsinu áður en hann sneri aftur. Lögreglan segir að Gledhill hafi síðan bent lögreglumönnum á sjálfan sig þegar þeir komu á vettvang.
Ekki liggur fyrir hvað vakti fyrir honum en nágrannar sögðu við fjölmiðla að þeir hefðu heyrt rifrildi milli hans og Handy um nóttina. Einn nágranni sagðist jafnframt telja að Gledhill hefði glímt við ranghugmyndir eða geðræn vandamál.
Langur ferill í kvikmyndum og sjónvarpi
James Handy fæddist í New York og hóf leikferil sinn á áttunda áratugnum. Ferillinn spannaði nærri 150 hlutverk í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Hann lék meðal annars í Jumanji, Logan og nýjustu Top Gun myndinni þar sem hann fór með hlutverk barþjónsins Jimmy.
Hann kom einnig fram í fjölmörgum vinsælum sjónvarpsþáttum, þar á meðal NYPD Blue, Alias, The West Wing, Castle og The X-Files.

