Ibrahima Konaté, varnarmaðurinn sterki hjá Liverpool, mun yfirgefa félagið í sumar eftir fimm ár í herbúðum þess.
Sky Sports greinir frá því í kvöld að Konaté og Liverpool komust ekki að samkomulagi um nýjan samning.
Félagið hefur síðustu mánuði reynt að sannfæra Konaté um að vera áfram í Bítlaborginni en það tókst ekki og er hann því á förum á frjálsri sölu.
Konaté kom til Liverpool frá Leipzig sumarið 2021 og lék 183 leiki með liðinu. Hann varð einu sinni enskur meistari, einu sinni enskur bikarmeistari og tvisvar enskur deildabikarmeistari með Liverpool.