Nokkuð var deilt á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í morgun um laun kjörinna fulltrúa og gengu bókanir á víxl á milli meiri- og minnihluta. Vildi minnihlutinn að nýleg hækkun þeirra yrði dregin til baka en meirihlutinn tók ekki undir það. Felldi meirihlutinn tillögu minnihlutans um að fjármagn sem færi í launahækkunina yrði frekar nýtt í tímabundna fjölgun plássa í skammtímavistun fyrir fötluð börn. Samþykkti meirihlutinn að fjármagna plássin með öðrum leiðum.
Höfnuðu því að nýta fjármagn frekar fyrir fötluð börn en að hækka laun bæjarfulltrúa