Verð hlutabréfa í Alvotech hefur hækkað um sjö prósent í morgun. Þetta gerist eftir að fyrirtækið tilkynnti um samþykki Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA) á nýrri aðferð við framleiðslu á Simlandi.
Simlandi er hliðstæða við líftæknilyfið Humira.
Samþykkið á framleiðsluaðferðinni fékkst skömmu eftir að ný framleiðslueining Alvotech í Vatnsmýri fékk leyfi FDA.