Hjörleifur Guðnason, sem leigði út frá sér íbúð í Reykjavík, segist vera fjárhagslega í rúst vegna þess að konan sem leigði af honum stóð ekki í skilum og bjó leigulaust í íbúðinni í hálft ár.
Þetta kemur fram á RÚV.
Í fyrra ákvað Hjörleifur að flytjast til Vestfjarða með kærustu sinni og leigja út íbúðina sína í Reykjavík. Kona tók íbúðina á leigu í október 2025 en í desember hætti hún að greiða leiguna án útskýringa. Liðu sex mánuðir þar sem konan bæði neitaði að greiða leiguna og flytja út. Segist Hjörleifur uppgötvað hvað leigjendur hafa ríkan rétt á kostnað leigusala.
Að lokum rifti hann leigusamningnum, eftir það tók við langt ferli þar sem Hjörleifur reyndi að fá konuna borna út úr íbúðinni en konan flutti ekki út fyrr en í maí. Hún skildi íbúðina eftir í slæmu ástandi, meðal annars eru skemmdir á parketi. Einnig tók hún með sér skúffur, hirslur og stiga sem tilheyrðu Hjörleifi. Vegna ástandsins á íbúðinni sá hann sér ekki fært að setja íbúðina aftur á leigu strax.
Hjörleifur segir að konan skuldi honum 1,8 milljónir króna í leigu auk lögfræðikostnaðar. Sé þá ekki innifalinn kostnaður vegna tjóns á íbúðinni.
Félagsþjónusta Reykjavíkurborgar hafði upphaflega skrifað upp á tveggja mánaða tryggingu fyrir konuna og Hjörleifur fékk hana greidda út að lokum, sem reyndist þó erfitt einmitt vegna þess að hann hafði rift leigusamningnum.
„Ég er í sannleika sagt búinn að þurfa að frysta húsnæðislánið. Ég er ekki lánshæfur lengur út af þessu. Þetta er bara búið að rústa mér fjárhagslega og andlega,“ segir Hjörleifur í viðtali við RÚV og ennfremur:
„En ég er mjög smeykur við að leigja út aftur.“