Karlmaður leitaði til sambandsráðgjafa breska blaðsins The Sun vegna vandamáls sem hann stendur frammi fyrir í hjónabandinu. Maðurinn sem um ræðir er 44 ára og eiginkona hans 46 ára.„Að fara í kynlífspartý hafði alltaf verið draumur okkar – en þegar ég og konan mín létum loks verða af því endaði það með algjörum ósköpum,” segir maðurinn í upphafi erindis síns sem birtist í hinum vinsæla dálki Dear Deidre.Maðurinn segir að eiginkonan vilji ólm fara í næsta partý en eftir síðustu reynslu hans muni hann aldrei stíga fæti inn á slíkan stað aftur.
Hjónin fóru saman í swing-partý til að krydda hjónabandið – upplifunin varð algjör martröð fyrir hann