„Hann lék tveimur skjöldum og var að segja það sama við bæði Sjálfstæðisflokkinn sem og okkur og Viðreisn,“ segir oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði um Valdimar Víðisson, bæjarstjóra og oddvita Framsóknarflokksins í Hafnarfirði.
Nýlega var greint frá því að sjálfstæðismenn í Hafnarfirði hefðu óvænt slitið meirihlutaviðræðum við Framsóknarflokkinn í morgun. Ástæðan er sögð vera trúnaðarbrestur, þar sem Framsóknarmenn hafi handsalað samkomulag um meirihlutaviðræður í tvær áttir.
Voru búin að fara yfir sætaskipan í helstu embætti
„Við vorum búin að vera í samtali þar sem búið var að fara yfir sætaskipan í helstu embættum og svo héldum við áfram og hittumst aftur til þess að ræða málefnagrunninn. Það var mikill samhljómur í öllu sem við töluðum um og næstu skref voru bara að heyra í baklandinu og í framhaldi af því skrifa yfirlýsingu um formlegt samtal,“ segir Hildur Rós Guðbjargardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, í samtali við mbl.is, um samtal sem hafði átt sér stað á milli Samfylkingarinnar, Framsóknar og Viðreisnar.
Bætir hún við að nokkrum mínútum áður en formleg fréttatilkynning hafi borist þess efnis að Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn væru komnir í formlegt samtal hafi Valdimar hringt í hana og sagt henni fréttirnar.
„Hann var búinn að segja við okkur og Viðreisn að það væri enginn grundvöllur fyrir samtali við Sjálfstæðisflokkinn og að það væri búið að slíta því öllu. Undir þeim formerkjum fóru flokkarnir að tala saman og töldu að það væri möguleiki,“ segir Hildur og segist jafnframt ekki hafa átt samtal við Valdimar eftir það símtal.
Traustið brotið
„Við erum ekki búin að eiga samtal eftir að meirihlutaviðræður þeirra hófust og ekki eftir að fréttirnar komu út núna áðan.“
Spurð hvort hún sjái fyrir sér að eiga samtal við Framsóknarflokkinn upp úr þessu segir hún það ekki vera fyrsta kost.
„Það er alveg á hreinu. Svona samstarf er byggt á trausti og hann er búinn að brjóta það núna áður en nokkuð gat hafist, þannig að það er ansi langur vegur. En svona er pólitík.“