Frá þessu er greint í tilkynningu frá borgarstjóra. Þar segir að Helga hafi starfað hjá ráðgjafafyrirtækinu Attentus undanfarin tæp tíu ár sem ráðgjafi í mannauðsmálum og klínískur sálfræðingur en hún er menntaður sem slíkur, með gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.
Þar áður hafi hún starfað hjá Maskínu við gerð viðhorfskannana. Auk þess hafi hún gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn gegnum árin og var kosningastjóri flokksins í borgarstjórnarkosningunum síðastliðið vor.
Helga er dóttir Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, og Ingu Jónu Þórðardóttur, viðskiptafræðings og fyrrverandi borgarfulltrúa.