Helga Lára Haarde verður aðstoðarmaður Hildar Björnsdóttur borgarstjóra.Helga kemur frá ráðgjafafyrirtækinu Attentus þar sem hún hefur starfað undanfarin tæp tíu ár sem ráðgjafi í mannauðsmálum og klínískur sálfræðingur. Þar áður vann Helga hjá Maskínu við gerð viðhorfskannana. Helga er menntaður klínískur sálfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Helga hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn gegnum árin og var kosningastjóri fyrir flokkinn í borgarstjórnarkosningunum síðastliðið vor.
Helga Lára aðstoðar borgarstjóra