Nathan Holmes-King er 22 ára Bandaríkjamaður sem dreymir um að setjast að á Íslandi. Hann kenndi sér sjálfur íslensku og vinnur nú að þróun smáforrits sem gerir notendum kleift að tengjast og æfa tungumál saman.
Nathan er fæddur og uppalinn í Kaliforníu en er með meistaragráðu í gagnavísindum frá háskólanum í San Francisco. Hann segist hafa viljað flytja til Íslands í mörg ár.
„Fyrir nokkrum árum ákvað ég að mig langaði að flytja til Íslands. Það er fámennt hérna sem mér finnst gott og það er aldrei heitt,“ segir Nathan. Hann kveðst einnig heillast af menningu landsins og sjálfstæði þess sem hann segir henta sér vel.
Talar íslensku af miklu öryggi
Þrátt fyrir að hafa aldrei búið hér á landi talar Nathan reiprennandi íslensku af miklu öryggi. Hann byrjaði að læra tungumálið með því að lesa greinar á íslensku sem hann fann á netinu.
„Það er bara mjög mikið af efni og greinum til sem hægt er að lesa á íslensku og svo lærði ég líka framburð og málfræði. Ég les fréttir á íslensku og skoða Vísindavefinn reglulega. Ég horfi líka á sjónvarpið á íslensku.“
Undanfarin misseri hefur Nathan unnið að þróun smáforritsins Kunnátt sem tengir saman fólk sem vill læra ný tungumál. Hann hóf forritun í desember og hefur eytt undanförnum mánuðum á Íslandi þar sem hann hefur kynnt Kunnátt fyrir notendum.
„Þetta er app til að tengja saman fólk sem vill læra ný tungumál, til dæmis getur innflytjandi sem vill læra íslensku fundið Íslendinga sem vilja læra tungumál innflytjandans. Þá eru kannski íslenskir sjálfboðaliðar og hægt að hittast og æfa sig saman.“
Hyggst sækja um íslenskan ríkisborgararétt
Nathan segist vonast til þess að tilkoma smáforritsins hjálpi honum að setjast að á Íslandi þar sem erfitt hafi reynst að finna vinnu og fá dvalarleyfi.
„Ég leitaði að vinnu mörgum sinnum en það er bara mjög erfitt að fá dvalarleyfi því það er mikil vinna sem fylgir því. Þess vegna bjó ég til Kunnátt. Ég var að vona að íslenskt fyrirtæki myndi kaupa það og þá gæti ég unnið þar og fengið dvalarleyfi.“
Nathan hefur ekki gefið upp vonina um að fá íslenskan ríkisborgararétt og hyggst senda inn umsókn til Alþingis áður en hann yfirgefur landið í bili.
„Ég ætla að skila inn blöðum í næstu viku áður en ég fer út. Ef ég fæ ríkisborgararétt ætla ég að koma til baka. Ef ekki hef ég enga hugmynd um hvað ég ætla að gera.“