Heildarafli nam 42 þúsund tonnum í júlí. Það er 51% minna en í sama mánuði í fyrra.
Uppsjávarafli var tæp 15 þúsund tonn og dróst saman um 74%. Lítil breyting varð á botnfiskafla sem var 25 þúsund tonn.
1.062 tonnum var landað frá ágúst 2025 til júlí 2026. Það er 8% meiri afli en á sama tímabili ári fyrr.
„Aukning var í afla uppsjávartegunda um 20% og vegur loðna ennþá mikið í þeirri aukningu. Botnfiskafli dróst hins vegar saman um 6% á milli tímabila og samdráttur var einnig í flatfiskafla um 13%,“ segir í tilkynningu Hagstofunnar.
Rúmlega 180 þúsund tonn af loðnu komu að landi á vertíðinni í ár. Það er mikil margföldun á afla miðað við magnið sem veitt var á örvertíð í fyrra.