Heilbrigðisráðuneytið segir að opnun 100 einkarekinna hjúkrunarrýma í Urðarhvarfi í Kópavogi fyrr á árinu hafi skipt miklu máli við að létta álagi af starfsemi Landspítalans. Þetta kemur fram í svörum frá ráðuneytinu við spurningum fréttastofu um reynsluna af samningnum um hjúkrunarrýmin.
Fyrirtækið Heilsuvernd rekur hjúkrunarrýmin og eigendur húsnæðisins eru meðal annarra eigendur Heilsuverndar. Rýmin eru skammtímaúrræði fyrir fólk sem dvalið hefur á Landspítala en þarf ekki lengur sjúkrahúsþjónustu.
Í svarinu frá heilbrigðisráðuneytinu segir: „Enn er of snemmt að leggja heildstætt mat á hvernig samningurinn hefur reynst til lengri tíma. Til skemmri tíma liggur þó ljóst fyrir að markmiðin um að stytta bið fólks með færni- og heilsumat eftir hjúkrunarrýmum og létta álagi af Landspítala hafa gengið eftir og þar munar miklu um hjúkrunarrýmin í Urðarhvarfi.“
Fjallað var um hjúkrunarrýmin í Urðarhvarfi í fréttaskýringaþættinum Þetta helst fyrir skömmu. Meðal annars var rætt við Teit Guðmundsson, framkvæmdastjóra Heilsuverndar. Þáttinn má hlusta á hér:
Húsnæðið ekki fullnýtt
Svörin frá ráðuneytinu eru við spurningum sem því voru sendar vegna þessarar umfjöllunar. Eitt af því sem spurt var um var hvort verið húsnæðið í Urðarhvarfi, sem ríkið hefur á leigu, væri fullnýtt.
Tveir samningar eru undir. Annars vegar húsaleigusamningur sem ríkið gerði við eigendur húsnæðisins til 20 ára og hins vegar þjónustusamningur sem ríkið gerði við Heilsuvernd um rekstur hjúkrunarrýmanna. Ríkið greiðir 52 milljónir króna á mánuði í leigu.
Ráðuneytið segir í svarinu að húsið hafi hingað til ekki verið fullnýtt en til standi að gera það: Húsnæðið er nýtt að mestu leyti en þó ekki öllu og verið er að leita leiða til að færa þar inn tengda þjónustu við aldraðra.
Í viðtali við fréttastofu sagði Teitur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Heilsuverndar og eiginmaður eins eigenda hússins í Urðarhvarfi, ekkert óeðlilegt að eigendur fasteignarinnar í Urðarhvarfi og eigendur Heilsuverndar væru að hluta til þeir sömu. „Ég held að það geti alveg verið það. Ég sé í sjálfu sér ekkert á móti því að rekstraraðili sem hefur ákveðna hugsjón og ákveðna sýn á það hvernig hann vill gera hlutina geti haft einhverjar nálganir á því hvernig það geti orðið. Mörg af þessum heimilum sem eru úti í umhverfinu okkar eru í eigu þeirra sem reka. Þau sem eru í byggingu eru líka að verða í eigu þeirra sem reka þau. Flest verkefni eru samt þannig að það eru fasteignafélög eða stærri aðilar sem eiga þau.“
Fyrirtækið sem á húsið í Kópavogi heitir Súlur Reykjavík ehf. Það keypti húsið á tæplega 3,5 milljarða króna í október 2024. Eigendur þess eru Sturla Björn Johnsen, annar eigandi Heilsuverndar, og Lilja Þórey Guðmundsdóttir, eiginkona Teits. Hin 50 prósentin eru í eigu félaga fjárfestanna Kristjáns Grétarssonar og Magnúsar Ármann.
Spurningar fréttastofu og svör ráðuneytisins
Spurningar fréttastofu til heilbrigðisráðuneytisins um hjúkrunarrýmin í Urðarhvarfi og svör ráðuneytisins eru birt hér í heild sinni.
Hvernig hefur leigusamningurinn reynst að mati ráðherra?
„Húsnæðið að Urðarhvarfi 16 var tekið á leigu til að mæta brýnni þörf fyrir fjölgun hjúkrunarrýma á höfuðborgarsvæðinu og létta álagi af Landspítala. Húsnæðið hefur verið aðlagað fyrir 100 rýma sólarhringshjúkrunarþjónustu og starfsemi hófst þar í mars 2026. Enn er of snemmt að leggja heildstætt mat á hvernig samningurinn hefur reynst til lengri tíma. Til skemmri tíma liggur þó ljóst fyrir að markmiðin um að stytta bið fólks með færni- og heilsumat eftir hjúkrunarrýmum og létta álagi af Landspítala hafa gengið eftir og þar munar miklu um hjúkrunarrýmin í Urðarhvarfi.“
Af hverju var ákveðið að semja um rýmin við Heilsuvernd og af hverju í þessari fasteign?
„Rétt er að greina á milli húsaleigusamningsins og samnings um rekstur þjónustunnar. FSRE auglýsti í lok janúar 2023 eftir húsnæði fyrir 60 til 120 rýma sólarhringshjúkrunarþjónustu fyrir aldraða á höfuðborgarsvæðinu. Leitað var að um 4.000 til 8.000 m² húsnæði sem væri nýlegt, auðvelt að aðlaga starfseminni og gæti orðið tilbúið innan tiltölulega skamms tíma. Þrjú tilboð bárust í markaðskönnuninni, þar á meðal tilboð vegna Urðarhvarfs 16, og var það húsnæði valið að undangengnu mati FSRE.
Á þessum tíma rak Heilsuvernd tímabundin hjúkrunarrými fyrir aldraða á Vífilsstöðum samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ). Upphaflega var unnið að því að flytja þá starfsemi í Urðarhvarf og fjölga rýmum. Síðar var ákveðið að rekstur 100 rýma heimilisins yrði boðinn út. Þann 12. desember tilkynnti SÍ um niðurstöðu útboðs rekstrarins og að ákveðið hefði verið að taka tilboði Heilsuverndar.“
Er leigurýmið fullnýtt?
„Húsnæðið er nýtt að mestu leyti en þó ekki öllu og verið er að leita leiða til að færa þar inn tengda þjónustu við aldraðra. “
Hver er mánaðarlegur kostnaður ríkisins af leigusamningnum og samningnum við Heilsuvernd?
„Samkvæmt leigusamningi var leigukostnaður áætlaður um 4.900 kr. á m² á mánuði, eða um 52 m.kr. á mánuði miðað við allt húsið. Umsamin húsaleiga og húsgjöld miðast við grunnvísitölu neysluverðs til verðtryggingar fyrir janúarmánuð 2023 eða 560,9 stig.
Samningur Sjúkratrygginga og Heilsuverndar um rekstur hjúkrunarrýmanna byggist á sömu forsendum og samningar SÍ við aðra rekstraraðila hjúkrunarrýma. Greitt er daggjald fyrir hvern dvalardag einstaklings í hjúkrunarrými. Fjárhæð daggjaldsins tekur mið af nokkrum þáttum, m.a. hjúkrunarþjónustu íbúa samkvæmt mati á hjúkrunarþyngd (RAI-mati), dvalarkostnaði og grunnheilbrigðisþjónustu. Heildargreiðslur ráðast af fjárhæð daggjaldsins og nýtingu hjúkrunarrýma og geta því verið breytilegar milli mánaða.“