Heiður hefur ekkert með skólasund að gera

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Sænski skólastjórnandinn og höfundur bókarinnar „Vad jag pratar om när jag pratar om skolan“ („Það sem ég tala um þegar ég tala um skólann“), Linnea Lindquist, gagnrýnir harðlega í nýjum pistli í Expressen að sumir skólar og sundlaugar bjóði upp á kynjaskipta sundkennslu eða aðskilda sundtíma fyrir kynin til að koma til móts við kröfur fjölskyldna um að stúlkur megi ekki synda með drengjum.
Stuðningsmenn kynjaskiptu sundkennslunnar halda því fram að þetta snúist um þátttöku, menningarlega skilning og að taka tillit til hagsmuna stúlkna.
Að sögn Lindquist yrði slíkt fyrirkomulag aldrei samþykkt í skólum á auðugum svæðum, en í félagslega viðkvæmum hverfum sé því oft lýst sem hagnýtri lausn. Hún telur að skólinn sé þannig að laga sig að heiðursbundnum viðmiðum í stað þess að standa fast á því að allir nemendur hafi sömu réttindi.
Með nærri 20 ára reynslu af starfi í skólum, einkum á sérstaklega viðkvæmum svæðum, lýsir hún því hvernig sumar stúlkur fá ekki að taka þátt í sund- og tónlistarkennslu, mega ekki sjálfar velja vini sína eða klæðnað og sæta eftirliti fjölskyldu sinnar og eldri systkina.
Heiðurskúgun
Í hvert skipti sem ég tala um heiðurskúgun mæti ég þeirri athugasemd að ,,hún eigi ekki við alla." En baráttan gegn heiðurskúgun snýst ekki um þá sem eru ekki viðkvæmir. Hún snýst um að vernda börn sem eru í hættu á limlestingu kynfæra, gifting barnungra stúlkna, börn sem eru send í fræðsluferðir í upprunalandið og þau sem lifa við takmörkun vegna heiðursreglna.
Lindquist bendir einnig á að þrýstingurinn haldi oft áfram yfir landamæri með samfélagsmiðlum og samskiptum við fjölskyldu í upprunalandinu. Ótti við slúður geti leitt til enn meiri stjórnunar og eftirlits með stúlkunum.
Hún bendir á að um 240.000 börn og ungmenni í Svíþjóð búi við takmarkandi heiðursviðmið og varar við því að skólar og félagasamtök auðveldi kúgunina þegar þau breyta starfsemi eða kennslu til að koma til móts við slík viðmið.
Að mati Lindquist ættu öll börn að hafa sama rétt til að taka þátt í allri kennslu, hreyfa sig frjáls, velja sér vini og móta eigið líf út frá eigin áhugamálum og draumum.
Heimild: Heder har inget i simskolan att göra | Linnea Lindquist | Expressen