Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir, Heiða Ósk, stofnandi Facebook-hópsins „Áfram stelpur“, greinir frá því á Facebook-síðu sinni, að lögregla hafi fellt niður rannsókn á ærumeiðingarmáli gegn henni. Fyrrverandi unnusti hennar kærði hana til lögreglu fyrir ærumeiðingar vegna skrifa hennar um meint ofbeldi hans. Hún birtir jafnframt mynd af bréfi frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þar sem henni er tilkynnt um að rannsókn málsins hafi verið hætt þar sem ekki sé talinnn grundvöllur til að halda henni áfram.
Heiða Ósk segir kæru fyrir ærumeiðingar vera hluta af áreiti fyrrverandi unnusta síns