Fimm unglingspiltar létust í hörðum árekstri á M9-hraðbrautinni í Kildare-sýslu á Írlandi aðfaranótt sunnudags. Bílnum sem þeir voru í var ekið á móti umferð þegar hann skall framan á bíl fjölskyldu sem var á leið til flugvallarins í Dublin.Fólkið í hinum bílnum slasaðist alvarlega. Kona á fertugsaldri sem ók bílnum og farþegi í framsæti, einnig á fertugsaldri, voru flutt á sjúkrahús og eru bæði í lífshættu. Kona á þrítugsaldri og barn, sem einnig voru í bílnum, eru alvarlega slösuð.
Harmleikur á Írlandi – Fimm unglingar létust og fjölskylda berst fyrir lífi sínu