Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, segir að Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, sé helsti sigurvegari nýafstaðinnar þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þá sendi hann Össuri Skarphéðinssyni, fyrrum ráðherra, eitraða pillu.Hannes Hólmsteinn vitnar í færslu Össurar frá því fyrri hluta ágúst en þar sagði Össur að Ólafur Ragnar hefði sokkið djúpt með því að væna Kristrúnu Frostadóttur um að ætla að sleppa annarri þjóðaratkvæðagreiðslu ef farið yrði í aðildarviðræður.
Hannes hyllir Ólaf Ragnar og sendir Össuri eitraða pillu eftir úrslitin um helgina