Hagnaður Arion banka á öðrum ársfjórðungi var 8,1 milljarður króna. Á sama tíma í fyrra var hagnaðurinn 9,8 milljarðar króna. Hagnaður á fyrstu sex mánuðum ársins var 15,4 milljarðar króna, samanborið við 16,2 milljarða króna á síðasta ári.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka.
„Afkoma annars ársfjórðungs var góð og náðum við öllum okkar fjárhagslegu markmiðum, þar með talið markmiði um samsetningu eiginfjár,“ er haft eftir Benedikti Gíslasyni, bankastjóra Arion banka.
Rekstrarkostnaður aukist
Arðsemi eigin fjár var 15,5% á öðrum ársfjórðungi en 19,7% árið 2025. Þá skilaði rekstur Varðar 500 milljón króna hagnaði til samanburðar við 800 árið á undan.
Ekki voru allar tölur lægri á síðasta ársfjórðungi en 2025. Kjarnatekjur jukust um 0,8% og lán til viðskiptavina jukust um 65,4 milljarða króna eða um 4,8% á ársfjórðungnum. Þá jókst rekstrarkostnaður um 10,9% sem samsvarar 732 milljónum króna.
„Eins og síðustu ársfjórðunga var vöxtur í innlánum sem studdi við útlánavöxt, sérstaklega til fyrirtækja. Einnig var áfram mjög góður gangur í tryggingastarfsemi Varðar sem og sjóðastarfsemi Stefnis. Eigin- og lausafjárstaða er sem fyrr góð og styrkir okkur í áframhaldandi vöruþróun og markaðssókn,“ er haft eftir Benedikt.
Arðgreiðsla og kaup eigin hlutabréfa nema samtals 23 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins.
Í tilkynningu Arion banka segir að rekstrarkostnaður hafi aukist um 11,9% eða 1,6 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins, í samanburði við sama tímabil 2025. Hærri launakostnaður, aðkeypt þjónusta og tölvukostnaður eru sögð helstu skýringar.