919 eru sagðir látnir og tæplega 4.800 er saknað í Nepal og Tíbet eftir hamfaraflóðið í síðustu viku. Menntamálaráðuneyti Nepal segir að yfir 200 nemenda sé saknað. Að minnsta kosti 19 skólar urðu fyrir hamfaraflóðinu.
Níu skólar gjöreyðilögðust og sjö aðrir eyðilögðust að hluta, en ekki liggur fyrir með ástand á öðrum skólum.
Björgunaraðgerðir standa yfir nærri göngum virkjunarinnar en tæplega níu hundruð er saknað sem voru við störf í virkjuninni þegar flóðið féll. Talið er að nokkur hundruð þeirra séu föst í göngum virkjunarinnar og björgunarfólk reynir nú að komast inn í göngin en enn er óljóst hvar fólkið er að finna.
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að um 200 lík hafi verið jarðsett í gær í Chitwan-héraði í Nepal og til standi að jarðsetja yfir 70 í dag. Ekki hefur verið hægt að bera kennsl á öll fórnarlömbin. Því eru tekin lífsýni úr líkamsleifum fórnarlamba sem borin verða saman við lífsýni eftirlifenda síðar.
Yfirvöld í Nepal segja að þess verði gætt að skrásetja allar líkamsleifar, hvar þær eru jarðsettar og krufningarskýrslur og allar tiltækar upplýsingar verði skráðar svo hægt verði að bera kennsl á fórnarlömb hamfaraflóðsins.
Yfirvöld í Uttar Pradesh á Indlandi, sem liggur að landamærum suður Nepal, segja 17 lík hafi fundist í ám sem renna frá Nepal.