Arion banki hækkaði í dag vexti á óverðtryggðum íbúðalánum sem eru fastir til þriggja ára. Vextirnir hækka um 0,50 prósentustig, úr 8,25 í 8,75 prósent. Vaxtahækkunin gildir aðeins um ný lán, ekki þau sem þegar hafa verið veitt.
Bankinn segir í tilkynningu á vef sínum að vaxtahækkunin sé fyrst og fremst til komin vegna þess að fjármögnun bankans er orðin dýrari.