Prófessor í hagfræði vill ekki sjá frekari stýrivaxtahækkun og segir aðhald og samdrátt í efnahagsmálum til þess fallin að stemma stigu við hækkandi verðbólgu. Til þess þurfi að hægja á framgangi atvinnulífsins.
Enn hærri vextir gætu dregið óþarflega mikið úr hagkerfinu og komið illa niður á heimilum, fyrirtækjum og byggingariðnaðinum.
Flestir greiningaraðilar telja að vextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig á miðvikudag, í 8%, þegar vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans verður kynnt. Miðað við verðbólguvæntingar er útlit fyrir að raunstýrivextir verði 4% eftir ár.
Síðasta verðbólgumæling vel yfir meðaltali
Már Wolfgang Mixa, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir líklegt að stýrivextir verði hækkaðir á miðvikudag. Þá fari álag stýrivaxta á verðbólgu upp í 2,7% miðað við síðustu verðbólgumælingu sem sé vel yfir meðaltali.
„Ef við berum saman stýrivexti í dag miðað við vænta verðbólgu næstu tólf mánaða erum við að tala um fjögurra prósenta raunstýrivexti,“ segir Már sem var gestur í Morgunútvarpi Rásar 1 í morgun.
Már segir stýrivexti hafa verið háa að undanförnu og stýrivaxtaálagið því mikið þessa stundina. Engu að síður hafi munurinn á verðbólgu hér og erlendis hjaðnað síðustu tvö ár.
„Þannig að þó svo að það væri betra að hafa verðbólguna lægri hefur hún engu að síður ekki verið alslæm miðað við þróunina erlendis.“
Verktakar sitji á óseldum íbúðum
Már segir ástandið í byggingariðnaði sérlega slæmt. Verktakar sitji margir hverjir á óseldum íbúðum og eigi erfitt með að losa sig við þær.
„Þeir eru í slæmri stöðu og það er erfitt fyrir suma að lækka verðin verulega því að bæði hefur byggingarkostnaður aukist og auk þess eru stýrivextirnir að bíta efnahagsreikning þessara verktaka afar illilega af því að þeir sitja með þessar tómu íbúðir.“
Ef af vaxtahækkun verður á miðvikudag segir Már það ekki eftir að vinna strax á verðbólgu dagsins í dag.
„Það getur tekið alveg tólf eða átján mánuði. Almennt er talað 12 til 24 mánuði en þetta tekur sinn tíma. Efnahagurinn er ekki eitt Excel-skjal. Smám saman fara stýrivextirnir að bíta og því tekur þetta sinn tíma“
Segir aðrar leiðir en vaxtahækkanir standa til boða
Spurður hvort aðrar leiðir standi til boða til að sporna gegn verðbólgu segir Már svo vera.
„Almennt er það Seðlabankans að sjá um slíkt og síðan ráðandi ríkisstjórnir hverju sinni. Slíkar aðgerðir eru kannski ekki beint fallnar til þess að auka vinsældir ríkisstjórnar, en það er í raun og veru bara aðhald og samdráttur,“ segir Már.
„Í fljótu bragði má segja að það séu þá auknar skattheimtur, að hækka skatthlutfallið, draga úr umsvifum, jafnvel greiða niður skuldir og í raun og veru bara hægja á framgangi atvinnulífsins.“
Már segist sjálfur hafa meiri áhyggjur af hugsanlegum áhrifum hærri stýrivaxta heldur en háu vaxtastigi.
„Ég sjálfur myndi frekar vilja hafa aðeins hærri verðbólgu en væntingar eru, til dæmis miðað við önnur lönd, og hafa kröftugan efnahagsvöxt í stað þess að hér dragist allt saman.“