Gular viðvaranir eru í gildi á Norðvesturlandi þar sem er allhvass eða hvass vindur. Í dag er stíf sunnan- og suðvestan átt.
Á Norður- og Austurlandi verður bjart á köflum og áfram verður hlýjast á norðaustanverðu landinu þar sem hiti verður víða 20 til 25 stig þegar best lætur.
Vestantil á að rigna seinni partinn. Þar má búast við töluverðri úrkomu í kvöld.
Á morgun má búast við hægari suðlægri átt og rigningu um tíma í flestum landshlutum, einkum suðvestan- og vestanlands. Þá verður hiti 10 til 22 stig, hlýjast eystra.
Á þriðjudag er útlit fyrir svipað en líklega að mestu þurrt á Austurlandi.