Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Tímabundnir leigusamningar - DV

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Tímabundnir leigusamningar - DV

Leigusamningar geta verið tímabundnir eða ótímabundnir, þ.e. gerðir til ákveðins tíma eða ekki. Í síðasta pistli fjallaði ég um uppsögn ótímabundinna leigusamninga um íbúðarhúsnæði eða annað húsnæði sem leigt er til íbúðar. Í þessum pistli ætla ég að fjalla um tímabundna leigusamninga um slíkt húsnæði, þ.e. hvort segja megi upp tímabundnum leigusamningum, hvað gerist ef leigjandinn er áfram í húsnæðinu að leigutíma loknum og um forgangsrétt leigjanda til áframhaldandi leigu húsnæðis að leigutíma loknum.

Meginreglan og undantekningar frá henni

Tímabundnum leigusamningi lýkur á umsömdum degi án sérstakrar uppsagnar eða tilkynningar af hálfu aðila. Frá þeirri meginreglu að tímabundnum leigusamningum megi ekki segja upp eru fjórar undantekningar sem koma fram í 37. gr. a, 37. gr. c, 50. gr. og 2. mgr. 58. gr. húsaleigulaga.

Í fyrsta lagi getur leigjandi sagt upp tímabundnum samningi vegna hækkun leigufjárhæðar á grundvelli 37. gr. a eða 37. gr. c húsaleigulaga, en hann getur einnig vísað ágreiningi um hækkunina til kærunefndar húsamála.

Í öðru lagi geta báðir aðilar sagt upp tímabundnum samningi, ef leigjandi er starfsmaður leigusala og hefur fengið húsnæðið til leigu vegna starfsins, ef leigjandi lætur af störfum að eigin ósk, honum er sagt upp, honum er vikið úr starfi eða þegar fyrir fram umsömdum ráðningartíma lýkur.

Í þriðja lagi er heimilt að semja um að segja megi tímabundnum leigusamningi upp á grundvelli sérstakra forsendna, atvika eða aðstæðna enda sé ekki fjallað um viðkomandi forsendur, atvik eða aðstæður í húsaleigulögum og skulu þau tilgreind í leigusamningi. Í þeim tilvikum sem slíkt er heimilt á gagnkvæmur uppsagnarfrestur að vera a.m.k. þrír mánuðir. Þarf uppsögnin að vera skrifleg og þarf rökstuðningur fyrir uppsögninni að fylgja.

Í fjórða lagi getur leigusali sem er lögaðili, sem ekki er rekinn í hagnaðarskyni, sagt upp tímabundnum leigusamningi með þriggja mánaða uppsagnarfresti þegar leigjandi uppfyllir ekki lengur lögmæt og málefnaleg skilyrði leigusala fyrir leigu á húsnæði sem tilgreind eru í leigusamningi eða veitir ekki nauðsynlegar upplýsingar svo unnt sé að staðreyna hvort hann uppfylli skilyrðin. Uppsögnin skal vera skrifleg og henni skal fylgja rökstuðningur fyrir uppsögninni.

Ef leigjandi er áfram í húsnæðinu

Ef átta vikur líða frá því að leigutíma lauk samkvæmt tímabundnum leigusamningi, eða uppsögn ótímabundins leigusamnings, en leigjandi heldur áfram að hagnýta hið leigða húsnæði og efna leigusamninginn framlengist leigusamningurinn ótímabundið ef leigusalinn hefur ekki skorað á hann að rýma húsnæðið eftir að leigutíma var lokið.

Almennt um forgangsrétt

Leigjandi íbúðarhúsnæðis eða annars húsnæðis sem leigt er til íbúðar á grundvelli tímabundins leigusamnings hefur að umsömdum leigutíma loknum forgangsrétt til leigu húsnæðisins, ef það er falt til áframhaldandi leigu, í a.m.k. eitt ár. Í 2. mgr. 51. gr. húsaleigulaga kemur fram hvenær forgangsréttur leigjanda gildir ekki.

Forgangsréttur leigjanda slíks húsnæðis hefur verið styrktur frá því sem var. Í stað þess að á leigjanda hvíldi skylda til að virkja forgangsréttinn með tilkynningu til leigusala a.m.k. þremur mánuðum fyrir lok leigutíma er nú gengið út frá því að leigjandi eigi forgangsrétt til áframhaldandi leigu húsnæðis við lok leigusamnings nema þær aðstæður eigi við sem valda því að forgangsréttur leigjanda gildir ekki skv. 2. mgr. 51. gr. húsaleigulaga og ber leigusala þá að tilkynna leigjandanum um það.

Leigusala ber því annaðhvort að leita eftir afstöðu leigjanda til þess hvort hann hyggst nýta sér forgangsréttinn eða upplýsa leigjandann tímanlega ef hann telur aðstæður vera með þeim hætti að forgangsrétturinn sé ekki fyrir hendi. Ef leigusalinn gerir það ekki hefur leigjandinn rétt til að leigja húsnæðið áfram.

Þannig hvílir ekki sérstök athafnaskylda á leigjanda til að virkja forgangsréttinn að öðru leyti en því að svara fyrirspurn leigusala um hvort hann vilji nýta sér hann innan lögmælts frests. Ef leigjandinn svarar ekki fyrirspurn þess efnis getur leigusalinn gengið út frá því að leigjandi ætli ekki að nýta sér forgangsréttinn.

Nota á stöðluð tilkynningareyðublöð HMS um forgangsrétt leigjanda við tilkynningar.

Ef leigjandi á forgangsrétt

Ef leigjandi á forgangsrétt á leigusali að kanna vilja leigjanda til þess að nýta sér forgangsréttinn, nema atvik og aðstæður séu með þeim hætti að telja verði það óþarft, svo sem ef leigjandi hefur sjálfur sagt upp leigusamningnum.

Á leigusalinn að kanna það með skriflegum og sannanlegum hætti þegar þrír mánuðir en ekki skemmra en sex vikur eru eftir af umsömdum leigutíma eða til loka uppsagnarfrests. Hafi tímabundinn leigusamningur verið gerður til skemmri tíma en þriggja mánaða er fresturinn 30 dagar. Að öðrum kosti telst leigusalinn una forgangsrétti leigjanda.

Ef leigjandinn vill nýta sér forgangsréttinn á hann að tilkynna leigusala það skriflega og með sannanlegum hætti innan 30 daga frá því að honum barst fyrirspurn leigusala um hvort hann vilji nýta sér hann. Að öðrum kosti fellur forgangsréttur hans niður.

Ef leigusali telur að leigjandi eigi ekki forgangsrétt

Ef leigusali telur að leigjandi eigi ekki forgangsrétt af einhverri þeirri ástæðu sem greinir í 2. mgr. 51. gr. húsaleigulaga á hann að gera leigjanda skriflega og rökstudda grein fyrir sjónarmiðum sínum og því hvaða ástæður standi forgangsréttinum í vegi a.m.k. þremur mánuðum áður en leigusamningurinn rennur út við lok uppsagnarfrests eða við lok umsamins leigutíma. Hafi tímabundinn leigusamningur verið gerður til skemmri tíma en þriggja mánaða skal fresturinn vera 30 dagar.

Að öðrum kosti telst leigusali una forgangsréttinum nema atvik og aðstæður séu þannig að telja verði slíka tilkynningu óþarfa, svo sem ef glöggt koma fram í uppsögn ástæður sem útiloka forgangsréttinn.

Ef leigjandi telur sig eiga forgangsrétt en leigusali ekki

Ef leigjandi telur þær aðstæður sem valda því að forgangsréttur gildir ekki skv. 2. mgr. 51. gr. húsaleigulaga eigi ekki við, á hann að andmæla afstöðu leigusala með skriflegri tilkynningu sem send skal leigusala með sannanlegum hætti innan 30 daga frá því að honum barst tilkynning leigusala eða afstaða leigusala var kynnt honum með uppsögn eða öðrum hætti.

Ef leigusali telur þrátt fyrir andmæli leigjanda að leigjandi eigi ekki forgangsrétt getur hann vísað ágreiningnum til kærunefndar húsamála innan 30 daga frá því að honum barst tilkynning um andmæli leigjanda. Að öðrum kosti telst hann una forgangsréttinum.

Skriflegt samkomulag og leigufjárhæð

Samkomulag um endurnýjun eða framlengingu leigusamnings á grundvelli forgangsréttar leigjanda á að vera skriflegt og undirritað af aðilum leigusamnings. Þá á að skrá samninginn í leiguskrá húsnæðisgrunns HMS.

Þegar samningur er endurnýjaður eða framlengdur vegna forgangsréttar á leigufjárhæðin að vera sanngjörn og eðlileg í garð beggja aðila. Líkur eru fyrir því að sú leigufjárhæð, sem áður gilti, sé sanngjörn og verður sá sem véfengir það að sýna fram á annað á grundvelli breytinga sem átt hafa sér stað á þeim þáttum sem greinir í 2. mgr. 37. gr. húsaleigulaga. Aðrir skilmálar, sem settir eru fyrir endurnýjuðum eða framlengdum leigusamningi, skulu og gilda svo fremi að þeir séu ekki ósanngjarnir eða brjóti í bága við góðar venjur í leiguviðskiptum.

Skaðabótaábyrgð leigusala

Ef leigusali hefur af ásettu ráði, svo sem með málamyndagerningi eða með sviksamlegum hætti, náð til sín leiguhúsnæði eða orðið til þess að leigjandi glati forgangsrétti sínum þá á hann að bæta leigjanda sannanlegt fjártjón hans. Slíka bótakröfu verður leigjandi að setja fram með sannanlegum hætti innan sex mánaða frá því að hann rýmdi húsnæðið. Að öðrum kosti fellur bótaréttur hans niður nema leigusali hafi beitt svikum.

Höfundur er lögmaður.

#guðfinna #guðmundsdóttir #jóh #skrifar #tímabundnir


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/eyjan/2026/5/3/gudfinna-joh-gudmundsdottir-skrifar-timabundnir-leigusamningar/

📰 Aðrar fréttir

Sinueldur á Kjalar­nesi - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Sinueldur á Kjalar­nesi - Vísir

„Ég held að þeir séu um það bil að klára þetta,“ segir Stefán Kristinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einungis þurfti að senda...
„Þitt vanda­mál er að þú skilur ekki stéttar­fé­lög“ - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 0

„Þitt vanda­mál er að þú skilur ekki stéttar­fé­lög“ - Vísir

Orð Björns Brynjúlfs Björnssonar framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs um verkalýðsfélög hafa fallið í grýttan jarðveg hjá fulltrúum félaganna. Björn var með...
Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks - DV
📅 01.01.1970 👁️ 0

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks - DV

Hinn 24. janúar 2024 var stytta af einum dáðasta Íslendingi síðustu aldar felld af stalli sínum á horni Lækjargötu og Amtmannsstígs þar sem hún hafði ...
Gervigreindin gæti haft á­hrif á ESB-atkvæðagreiðsluna - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 0

Gervigreindin gæti haft á­hrif á ESB-atkvæðagreiðsluna - Vísir

Þetta var á meðal þess sem hann minntist á í viðtali um gervigreind í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. „Ég held að það sé mjög vert að staldra aðeins v...
Helgi kannaðist fljótt við sig sem „góðkunningja“ lögreglunnar - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Helgi kannaðist fljótt við sig sem „góðkunningja“ lögreglunnar - DV

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er virk á Facebook og birtir oft myndir úr safni sínu frá síðustu árum og áratugum. Svo var einnig á laugardag þegar þe...
Staðan enn góð hjá málurum en blikur á lofti fyrir haustið
📅 01.01.1970 👁️ 0

Staðan enn góð hjá málurum en blikur á lofti fyrir haustið

Formaður Málarameistarafélagsins telur stöðu greinarinnar góða eins og er en að blikur séu á lofti eftir sumarið. Formaður félags pípulagningameistara...
Guðleg forsjón
📅 01.01.1970 👁️ 0

Guðleg forsjón

Guðleg forsjón Það var að áliðnu kvöldi fyrir skömmu að Donald Trump var að fikta við eitthvað gervigreindarforritið …  ég hef svosem ekki hugmynd um ...
„Mjög sterk öfl alltaf tilbúin til þess að reyna að kroppa í öll áunnin réttindi“
📅 01.01.1970 👁️ 1

„Mjög sterk öfl alltaf tilbúin til þess að reyna að kroppa í öll áunnin réttindi“

„Fólk áttar sig á því að það sem áunnist hefur er fljótt að glutrast niður ef við erum ekki í varðstöðu til að verja það áfram. Það eru mjög sterk öfl...
„Við þurfum að gæta þess að fólk verði hluti af samfélaginu“ - DV
📅 01.01.1970 👁️ 0

„Við þurfum að gæta þess að fólk verði hluti af samfélaginu“ - DV

„Það er mikilvægt að átta sig á því að útlendingar sem flytja til Íslands, langflestir eru komnir hingað til að vinna og bæta sitt líf. Rífa sig upp f...
Brott­hvarf banda­rískra her­manna veiki ekki NATO í Evrópu - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Brott­hvarf banda­rískra her­manna veiki ekki NATO í Evrópu - Vísir

Donald Trump tilkynnti fyrir helgi að þúsundir hermanna Bandaríkjanna í Þýskalandi yrðu kallaðir heim. Þetta var eftir að Friedrich Merz kanslari Þýsk...
Hefur þú gert mistök? - Ragnhildur er með ráð við því - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Hefur þú gert mistök? - Ragnhildur er með ráð við því - DV

Pistlar Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðings, betur þekkt sem Ragga nagli, sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda á Facebook-síðu hennar....
Eftir­lit lög­reglu og utan­ríkis­ráð­herra um breytingar á her­afla í Þýska­landi - Vísir
Jón Pétur biðst afsökunar en ekki Þórunn þingforseti
📅 01.01.1970 👁️ 0

Jón Pétur biðst afsökunar en ekki Þórunn þingforseti

Jón Pétur biðst afsökunar en ekki Þórunn þingforseti ForsíðaFréttir Tweet Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokk...
Two dead and major incident declared after Frenchay explosion
📅 01.01.1970 👁️ 1

Two dead and major incident declared after Frenchay explosion

Two dead and major incident declared after explosion13 minutes agoShareSaveAdd as preferred on GoogleBeth CruseandAndrew Segal,West of EnglandBBCEmerg...
„Þessi munur er sláandi“
📅 01.01.1970 👁️ 1

„Þessi munur er sláandi“

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, segir verðmun á loðnu á Íslandi og í Færeyjum sláandi. Í svari ráðherra við fyrirspurn Eydísar Ásbjörns...
Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“ - DV
📅 01.01.1970 👁️ 0

Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“ - DV

Ingibjörg Dögg Kristinsdóttir lést í kajakslysi í Skorradalsvatni síðastliðinn miðvikudag, 44 ára að aldri. Inga, eins og hún var kölluð, skilur eftir...
Zack Polanski says police 'should not be above scrutiny' over Golders Green response
📅 01.01.1970 👁️ 1

Zack Polanski says police 'should not be above scrutiny' over Golders Green response

Polanski says police 'should not be above scrutiny' over Golders Green response2 hours agoShareSaveAdd as preferred on GoogleRichard WheelerPolitical ...
Inga Dögg Kristinsdóttir er fallin frá
📅 01.01.1970 👁️ 0

Inga Dögg Kristinsdóttir er fallin frá

Inga Dögg Kristinsdóttir er fallin frá Mynd: KinoMasterskaya/Shutterstock Inga Dögg Kristinsdóttir er fallin frá en eiginmaður hennar, Vésteinn Valgar...
Inga Dögg lést á Skorra­dals­vatni - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Inga Dögg lést á Skorra­dals­vatni - Vísir

Eiginmaður hennar, Vésteinn Valgarðsson, greinir frá þessu í færslu á Facebook. „Inga varð 44 ára. Ástin í lífi mínu, lífsförunauturinn minn. Ég fékk ...
Vilja slaka á kröfum um endurnýjun ökuréttinda eldri borgara
📅 01.01.1970 👁️ 1

Vilja slaka á kröfum um endurnýjun ökuréttinda eldri borgara

Ökumenn 65 ára og eldri þurfa að endurnýja ökuréttindin á eins til fimm ára fresti - og árlega eftir áttrætt. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður ...
Two killed and major incident declared after Frenchay explosion
📅 01.01.1970 👁️ 1

Two killed and major incident declared after Frenchay explosion

Two killed and major incident declared after explosion13 minutes agoShareSaveAdd as preferred on GoogleBBCPolice and paramedics are among emergency se...
Engar handtökur í samkvæmi Hells Angels
📅 01.01.1970 👁️ 5

Engar handtökur í samkvæmi Hells Angels

Enginn var handtekinn þegar lögregla fylgdist með samkomu í félagsheimili Vítisengla í Auðbrekku í Kópavogi frá því fyrir klukkan sex í gær. Samkvæmt ...
Lögðu hald á eggvopn og fíkni­efni en hand­tóku engan - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Lögðu hald á eggvopn og fíkni­efni en hand­tóku engan - Vísir

„Við höfðum fregnir af samkomu í aðsetri þeirra í Auðbrekku í Kópavogi og það var sett upp ákveðið aðgerðaskipulag sem við höfum viðhaft áður í samkom...
Ragnar Þór Ingólfsson: Framganga stjórnarandstöðunnar með hreinum ólíkindum - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Ragnar Þór Ingólfsson: Framganga stjórnarandstöðunnar með hreinum ólíkindum - DV

Stjórnarandstaðan leggst þvert gegn öllum málum sem ríkisstjórnin kemur með inn í þingið, stundar jafnvel málþóf og tafir við afgreiðslu mála sem full...
Zack Polanski stands by concerns over police response to Golders Green attack
📅 01.01.1970 👁️ 1

Zack Polanski stands by concerns over police response to Golders Green attack

Polanski stands by concerns over police response to Golders Green attack45 minutes agoShareSaveAdd as preferred on GoogleRichard WheelerPolitical repo...
Verka­lýðs­fé­lög, gervi­greind og Landeyjahöfn í Sprengi­sandi - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Verka­lýðs­fé­lög, gervi­greind og Landeyjahöfn í Sprengi­sandi - Vísir

Fyrstur verður Hafsteinn Einarsson til að ræða gervigreind. Umræðan um Mythos gervigreindarlíkan Anthropic fyrirtækisins var engu lík, líkanið var tek...
Náttúruafl og aðgerðasinni í heila öld
📅 01.01.1970 👁️ 1

Náttúruafl og aðgerðasinni í heila öld

Hann hefur farið með okkur niður á hafsbotn, að kjarna jarðar, inn í myrka frumskóga og upp í hæstu trjákrónur. Leitt okkur að náttúrunni í öllum sínu...
Orðið á götunni: Verður Ari Edwald borgarstjóraefni minnihlutans? - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Orðið á götunni: Verður Ari Edwald borgarstjóraefni minnihlutans? - DV

Minnihlutaflokkarnir á Alþingi, Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn, eru líklegir til að vilja vinna saman nái þeir meirihluta í komandi borgar...
Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef - DV

Framboð Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi kynnti í gær stefnuskrá sína og helstu áherslumál fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. ...
Hagar styrkja níu frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Hagar styrkja níu frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu - DV

Níu íslensk frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu hafa hlotið styrki frá Uppsprettunni, nýsköpunarsjóði Haga, til að vinna að nýsköpun í matvælaiðna...
Erlendir aðgerðarsinnar koma fyrir ísraelska dómstóla
📅 01.01.1970 👁️ 0

Erlendir aðgerðarsinnar koma fyrir ísraelska dómstóla

Tveir aðgerðarsinnar, sem reyndu að sigla með hjálpargögn á Gaza-svæðið, koma fyrir ísraelskan dóm í dag. Þeir eru frá Spáni og Brasilíu og voru flutt...
Eigendur Sóltúns handteknir
📅 01.01.1970 👁️ 2

Eigendur Sóltúns handteknir

Eigendur Sóltúns handteknir Hjúkrunarheimilið Sóltún Mynd: Sóltún Í fyrra samþykkti embætti Skattsins beiðni eigenda Öldungs hf., móðurfélags hjúkruna...
Germany troop cuts send wrong signal to Russia, say two top US Republicans
📅 01.01.1970 👁️ 0

Germany troop cuts send wrong signal to Russia, say two top US Republicans

Germany troop cuts send wrong signal to Russia, say two top US Republicans28 minutes agoShareSaveAdd as preferred on GoogleRobert GreenallBBC NewsGett...
Úti­lokar ekki frekari hernaðar­að­gerðir eða að fleiri her­menn fari heim - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Úti­lokar ekki frekari hernaðar­að­gerðir eða að fleiri her­menn fari heim - Vísir

Í frétt Guardian um málið segir að Íranir segi boltann hjá Trump og að ólíklegt sé að hann samþykki nýjustu tillöguna um frið. Í fréttinni segir að ti...
Ókennilegt flygildi yfir Finnlandi
📅 01.01.1970 👁️ 1

Ókennilegt flygildi yfir Finnlandi

Finnski flugherinn varð í rauðabítið var við að ókennilegt flygildi sveimaði innan lofthelginnar yfir Virolahti nærri landamærunum að Rússlandi. Í yfi...
Norðanátt og stöku él
📅 01.01.1970 👁️ 1

Norðanátt og stöku él

Fremur hæg norðanátt verður ráðandi í dag með stöku éljum og hita í kringum frostmark á Norðaustur- og Austurlandi. Um landið vestanvert verður hitinn...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi - DV
📅 01.01.1970 👁️ 0

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi - DV

Sú sem þetta skrifar hefur á undanförnum vikum, oftar en einu sinni, heyrt stjórnmálaskýrendur segja að Viðreisn muni mjög líklega verða í oddastöðu í...
Transumræða fjarlægð úr íbúahópi á Seltjarnarnesi – „of heit kartafla“
📅 01.01.1970 👁️ 0

Transumræða fjarlægð úr íbúahópi á Seltjarnarnesi – „of heit kartafla“

Transumræða fjarlægð úr íbúahópi á Seltjarnarnesi – „of heit kartafla“ ForsíðaFréttir Tweet Screenshot Heitar deilur brutust út í Facebook-hópnum Íbúa...
Sóltúnsmálið: Hafa greitt sér rúma þrjá milljarða úr móðurfélagi hjúkrunarheimilisins
📅 01.01.1970 👁️ 0

Sóltúnsmálið: Hafa greitt sér rúma þrjá milljarða úr móðurfélagi hjúkrunarheimilisins

Í lok nóvember í fyrra samþykkti embætti Skattsins að heimila eigendum fyrirtækisins Öldungs hf., sem er móðurfélag hjúkrunarheimilisins Sóltúns í Rey...
Heill heimur í íslenskum fornbréfum
📅 01.01.1970 👁️ 0

Heill heimur í íslenskum fornbréfum

Heill heimur í íslenskum fornbréfum „Ég hef nú lifað þannig lífi að það hafa orðið miklar sviptingar og ýmislegt sem hefur breytt lífi mínu. Mig langa...
Fjórir hand­teknir vegna fjögurra líkams­á­rása - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 0

Fjórir hand­teknir vegna fjögurra líkams­á­rása - Vísir

Í dagbók kemur annars fram að mikill erill hafi verið hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Alls hafi 99 mál verið skráð hjá lög...
Lög­regla með virkt eftir­lit við af­mæli Hell's Angels - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 0

Lög­regla með virkt eftir­lit við af­mæli Hell's Angels - Vísir

Greint var frá því í gær að samtökin væru að halda upp á fimmtán ára afmæli sitt og var lögregla með töluverðan viðbúnað við Auðbrekku þar sem afmælið...
Gríðarstór gersemi í Garðabæ til sölu
📅 01.01.1970 👁️ 1

Gríðarstór gersemi í Garðabæ til sölu

Gríðarstór gersemi í Garðabæ til sölu Háholt 3 Glæsilegt og afar rúmgott einbýlishús við Háholt 3 í Garðabæ hefur verið sett á sölu.Um er að ræða 386,...
Um það bil 40 þúsund mættu á teknótónlistarviðburð í óleyfi
📅 01.01.1970 👁️ 0

Um það bil 40 þúsund mættu á teknótónlistarviðburð í óleyfi

Talið er að um 40 þúsund hafi mætt á teknótónlistarviðburð sem haldinn var í leyfisleysi í frönsku borginni Bourges í gærkvöld.Borgaryfirvöld litu svo...
Á­fram­haldandi norðan­átt og stöku él - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 0

Á­fram­haldandi norðan­átt og stöku él - Vísir

Í hugleiðingum veðurfræðings kemur svo fram að á morgun, mánudag, sé útlit fyrir áframhaldandi norðanátt með éljum um landið norðanvert. Strekkingsvin...
Ferðamaður á nærfötunum fann ekki hótelið sitt aftur
📅 01.01.1970 👁️ 1

Ferðamaður á nærfötunum fann ekki hótelið sitt aftur

Annir voru hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og í nótt að því er segir í morgunskeyti.Erillinn virðist hafa verið mestur í miðborg og ve...
Einn lét lífið í umfangsmikilli drónaárás á Kherson
📅 01.01.1970 👁️ 0

Einn lét lífið í umfangsmikilli drónaárás á Kherson

Einn lét lífið og fjórir særðust í drónaárás Rússlandshers á borgina Kherson í Úkraínu í nótt. Hernaðaryfirvöld í borginni greindu frá þessu í morgun....
Man charged over Australian Outback death of 5-year-old girl
📅 01.01.1970 👁️ 1

Man charged over Australian Outback death of 5-year-old girl

Man charged with murder and sexual assault of 5-year-old Australian girl1 hour agoShareSaveAdd as preferred on GoogleHarry SekulichReutersWarning for ...
Sérstakri nefnd fólgið að endurskoða fyrri umferð forsetakosninganna
📅 01.01.1970 👁️ 0

Sérstakri nefnd fólgið að endurskoða fyrri umferð forsetakosninganna

Yfirkjörstjórn í Perú hefur ákveðið að hefja ítarlega endurskoðun á fyrri umferð forsetakosninga sem haldnar voru fyrir þremur vikum. Sérstakri nefnd ...
How we reported in -30C temperatures in Canada's Arctic
📅 01.01.1970 👁️ 1

How we reported in -30C temperatures in Canada's Arctic

How we reported in -30C temperatures in Canada's ArcticThe BBC joined Canada's military rangers on the final leg of a 5,200km (3,200 miles) Arctic pat...