Í tilkynningu Lögreglunnar í Vestmannaeyjum kemur fram að upp hafi komið níu fíkniefnamál í nótt. Þar á meðal er eitt mál þar sem grunur er um sölu fíkniefna og hefur lögregla tekið málið til frekari rannsóknar.
Tilkynnt var um tvær minniháttar líkamsárásir auk þess sem ýmis ölvunartengd verkefni komu til kasta lögreglu.