Jens Frederik Nielsen formaður landstjórnar fundaði í dag með Jeff Landry fulltrúa Bandaríkjaforseta í málefnum Grænlands og Ken Howery sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku um samskipti landanna. Landry er í þriggja daga heimsókn á Grænlandi á vegum Trumps og Howery kom til Grænlands í morgun. Múte B. Egede utanríkisráðherra Grænlands var einnig á fundinum.
Nielsen sagði á blaðamannafundi í Nuuk í dag að fundur þeirra fjögurra hefði farið fram af gagnkvæmri virðingu og á góðum nótum. Þeir hafi ítrekað að það sem stjórnvöld hafi sagt frá upphafi gildi enn þá – það eigi að virða grænlenskt samfélag og að það sé vilji til góðs samstarfs við Bandaríkin.
En mörkin hafi líka verið ítrekuð. „Við höfum tjáð afstöðu Grænlands með skýrum hætti. Og við sjáum í fjölmiðlum að stjórnvöld hafa ekki skilið þessa afstöðu.“
Nielsen sagði jafnframt að þessi fundur hefði engu breytt í sambandi Bandaríkjanna og Grænlands. „Þessi fundur sýndi engin merki þess að nokkuð hefði breyst,“ sagði Nielsen.
Múte B. Egede utanríkisráðherra sagði að það sem nú hefði breyst væri að í stað þess að tala saman í fjölmiðlum hefði komist á diplómatísk tenging þannig að nú væri hægt að vinna hlutina á réttan hátt.
Á fundinum kom einnig fram að búast megi við fleiri fundum í þeim tilgangi að finna bestu lausnina fyrir Grænland.
Jeff Landry sagði þegar hann kom til Grænlands í gær að hann væri þarna fyrst og fremst til að byggja upp tengingar og eignast vini.