Bandarískir notendur landakortavefsins Google maps gætu þurft að leita lengi á landakorti Google að Ontario-vatni – leiti þeir þess – því nafni vatnsins hefur verið skipt út fyrir Ameríkuvatn á kortavefnum og í smáforriti.
Donald Trump Bandaríkjaforseta undirritaði forsetatilskipun á fimmtudaginn um að vatnið skyldi endurnefnt Ameríkuvatn og uppfæra þarf öll opinber gögn í Bandaríkjunum samkvæmt þessu innan 30 daga.
Tæknirisinn Google brást fljótt við, rétt eins og þegar Trump breytti nafni Mexíkóflóa í Ameríkuflóa á síðasta ári.
Ontario-vatn birtist áfram kanadískum notendum
Ontario-vatn mun áfram birtast á Google landakortinu hjá kanadískum notendum. Restin af heimsbyggðinni sér svo bæði nöfnin á kortinu samkvæmt Google. Enn sem komið er hefur Apple ekki breytt nafni vatnsins, sem enn heitir Ontario-vatn á landakorti í smáforriti fyrirtækisins.
Nafnabreytingunni hefur verið harðlega mótmælt í Kanada. Til að undirstrika óánægju sína enn frekar hafa Kanadamenn nú látið reisa stærðarinnar skilti nærri Grimsby í Ontario, sem á stendur á ensku og frönsku, Ontario-vatn, núna og alltaf.