Öryggisatvik sem kom upp hjá þjónustuaðila Canvas-námsumsjónarkerfis Háskóla Íslands olli tímabundnum truflunum á kerfinu. Mögulegt er að óviðkomandi aðilar hafi fengið aðgang að ákveðnum notendaupplýsingum eins og nafni, netfangi og skilaboðum milli notenda í Canvas.
Háskólinn sendi nemendum póst í dag þar sem greint er frá öryggisatvikinu.
Öryggisatvikið tengdist alþjóðlegri þjónustu Canvas og hafði því atvikið áhrif víðar en í Háskóla Íslands. Viðbragðsteymi hafa brugðist við brestinum og hefur námsumsjónarkerfið verið fært í eðlilegt horf.
Í tilkynningu frá háskólanum segir að ekki séu neinar upplýsingar um að nemendur í Háskóla Íslands hafi orðið fyrir áhrifum bilunarinnar.
„Rannsókn á vegum þjónustuaðila stendur enn yfir og fylgjumst við náið með framvindu hennar. Við munum upplýsa um stöðuna um leið og frekari upplýsingar liggja fyrir.“
Háskólinn mun áfram fylgjast grannt með upplýsingum frá Infrastructure, þjónustuaðila Canvas. Nemendur háskólans eru beðnir um að hafa samband við sinn kennara ef þeir telja sig hafa orðið fyrir truflun vegna atviksins.